Síðdegis í dag afhenti Samherji styrki til ýmissa samfélagsverkefna – þar á meðal íþrótta- og æskulýðsstarfs á Akureyri og í Dalvíkurbyggð, í hófi sem efnt var til í Flugsafninu á AkureyriÞetta er í þriðja sinn á jafnmörgum árum sem Samherji veitir slíka styrki. Árið 2008 var styrkupphæðin 50 milljónir króna, á síðasta ári var hún 60 milljónir króna og í ár var styrkupphæðin 75 milljónir króna. Samtals nema þessir styrkir því 185 milljónum króna á þremur árum. Eitt þeirra íþróttafélaga á Akureyri sem hlaut styrk frá Samherja er KA.
Hrefna Torfadóttir, formaður félagsins, veitti viðtöku styrk sem skal varið til þess að niðurgreiða æfingagjöld iðkenda í yngri flokkum félagsins og/eða lækka ferðakostnað þeirra. Einnig styrkir Samherji meistaraflokka félagsins og veittu Bjarni Áskelsson, formaður knattspyrnudeildar, Erlingur Kristjánsson, formaður handknattleiksdeildar og Gunnar Garðarsson, formaður blakdeildar, þeim styrkjum viðtöku.
Höfðinglegur stuðningur við KA og iðkendur hjá félaginu og önnur þrótta- og æskulýðsfélög á Akureyri og í Dalvíkurbyggð verður aldrei fullþakkaður. Hann er ómetanlegur og sýnir hug stjórnenda og eigenda Samherja og um leið allra starfsmanna félagsins til samfélagsins. Með þessum stuðningi leggur Samherji sitt lóð á vogarskálarnar til þess að stuðla að því að börn og unglingar geti stundað þær íþróttir sem hugur þeirra stendur til. Fyrir það vill KA þakka af heilum hug og færir aðaleigendum Samherja, Þorsteini Má Baldvinssyni, Kristjáni Vilhelmssyni, Kolbrúnu Ingólfsdóttur og Helgu Steinunni Guðmundsdóttur, svo og öllu því dugmikla starfsfólki sem starfar hjá félaginu, innilegar þakkir.
-ÓÞH