Samherji styrkir barna- og unglingastarf KA um 10 milljónir króna

Í dag efndi Samherji hf. til samsætis í Ketilhúsinu á Akureyri þar sem þess var minnst að 25 ár eða aldarfjórðungur er liðinn frá því að fyrirtækið var stofnað. Jafnframt var þess minnst að feður þeirra Samherjafrænda, Kristjáns og Þorsteins, tvíburabræðurnir Vilhelm og Baldvin Þorsteinssynir, hefðu orðið 80 ára á þessu ári, hefðu þeir lifað, en báðir létust þeir langt um aldur fram.

 

Við þetta tækifæri tilkynntu þeir Samherjafrændur um þá ákvörðun sína að veita 50 milljónum króna til íþróttafélaga á Akureyri og annarra félagasamtaka í bænum. Þeim fjármunum sem Samherji gefur íþróttafélögunum skal verja tl þess að lækka kostnað við íþróttaiðkun  barna og unglinga á grunnskólaaldri, með lækkun æfingagjalda og/eða lækkun kostnaðar við keppnisferðir.

Hlutur Knattspyrnufélags Akureyrar í þessari gjöf Samherja er 10 milljónir króna, sem mun skiptast á milli deilda félagsins – handknattleiks-, knattspyrnu-, blak- og júdódeilar. Aðalstjórn KA ásamt stjórnum og unglingaráðum deildanna munu á næstunni ákvarða með nánari skiptingu fjármunanna og nýtingu þeirra og verður það tilkynnt forráðamönnum iðkenda þegar niðurstaða liggur fyrir.

Jafnframt mun Samherji verða aðabakhjarl verkefnis sem ber yfirskriftina “Hreyfing og útivist” og er hugarfóstur Stefáns Gunnlaugssonar, formanns KA. Þessu verkefni verður hleypt af stokkunum innan tíðar. Jónatan Magnússon verður starfsmaður þessa verkefnis næstu mánuði.

Erfitt er að finna nógu sterk orð til að lýsa þakklæti Knattspyrnufélags Akureyrar og samfélagsins á Akureyri vegna þessa höfðinglega framlags Samherja í þágu íþrótta barna og unglinga í bænum. Nú, þegar sverfur að í samfélaginu er aldrei mikilvægara að skapa öllum börnum og unglingum, óháð efnahag, tækifæri til að stunda þær íþróttir sem hugur þeirra stendur til. Framlag Samherja, sem var tilkynnt í dag, er gríðarlega mikilvægur þáttur í að gera börnum og unglingum á Akureyri kleift að stunda íþróttir af krafti. Fyrir það er Knattspyrnufélag Akureyrar þakklátt og mun leggja sitt af mörkum, hér eftir sem hingað til, til þess að bjóða iðkendum í þeim deildum sem félagið starfrækir upp á fyrsta flokks þjálfun og þjónustu.