Akureyrarbær framlengdi í dag til fimm ára rekstrarsamninga sína við Knattspyrnufélag Akureyrar og Íþróttafélagið Þór. Meðal nýmæla er að félögin eiga kost á sérstakri „hvatagreiðslu“ sem nemur 4 milljónum króna á ári, takist þeim að halda rekstrinum hallalausum og innan rekstraráætlunar.
Til viðbótar núgildandi samningi frá 2002 og hvatagreiðslunum, mun Akureyrarbær styrkja KA og Þór með fernum hætti:
Það er sameiginlegur skilningur aðila að vanda þurfi betur upplýsingagjöf félaganna til Akureyrarbæjar. Félögin munu jafnframt leggja fram stefnumótandi áætlanir um rekstur út samningstímann og áætlanir um niðurgreiðslu þeirra skulda sem á félögunum hvíla, eftir að fjármunir sem lagðir eru fram í upphafi hinna nýju rekstrarsamninga hafa verið nýttir til lækkunar á skuldabyrði félaganna.
Markmið samninganna af hálfu Akureyrarbæjar er að styrkja fjárhag og rekstur íþróttafélaganna svo þau geti áfram haldið úti öflugu íþróttastarfi á Akureyri.
Samningsaðilar eru jafnframt sammála um að með samningunum verði úr sögunni allir hugsanlegur eldri ágreiningur milli samningsaðila um fjárhagsleg atriði.