Stefán og Sigfús takast í hendur eftir undirskrift samningana
Sú hefð er að komast á að KA og Þór bjóði stjórnarmönnum og starfsfólki sínu í kaffi á milli jóla og
nýárs. Þórsarar riðu á vaðið í fyrra og buðu starfsfólki og stjórnarmönnum til sín í kaffi en í
ár ákváðu svo KA menn að gera slíkt hið sama. Er þetta gert til að treysta vinarböndin milli stjórnarmanna og starfsfólks
þessara stóru félaga sem elda oft grátt silfur inn á leikvanginum eins og eðlilegt er, er það von manna að þetta sé hef sem komin er
til að vera.
Gestunum var boðið í skoðunarferð um KA heimilið þar sem hin mikla starfsemi sem fram fer í húsinu var kynnt, síðan var öllum
boðið til veislu í félagsheimilinu. Áður en að veislan hófst skrifuðu þeir Stefán Gunnlaugsson formaður KA og Sigfús Helgason
formaður Þórs undir samstarfssamning til þriggja ára. Í honum kveður á að KA mun sjá um rekstur 2. og meistaraflokks í handbolta en
Þór um rekstur sömu flokka í knattspyrnu. Við þetta tækifæri lýstu báðir formennirnir yfir ánægju með það
góða samstarf sem félögin hafa átt undanfarin ár.
Hér getur þú séð fleiri myndir sem teknar voru af Þóri
Tryggva.