Þetta verða að teljast mjög góð tíðindi en það er öllum liðum mikilvægt að hafa traustan markmann milli stanganna en óhætt er að segja að Sandor hafi verið lykilmaður undanfarin þrjú ár hjá liðinu.
Í sumar var hann einnig aðstoðarþjálfari liðsins eftir að Míló var sagt upp störfum.
Það er þó ekki eina vítið sem hann hefur varið í KA búningi en hann hefur verið mikill vítabani og ógleymanlegt er þegar hann varði öll þrjú vítin í vítaspyrnukeppni gegn ÍBV í VISA-bikarkeppninni á árunum.
,,Ég mun gera nýjan samning og vera áfram. Aðalmálið fyrir mig var að gera langan samning þar sem ég er ekki ungur," sagði Sandor í samtali við Fótbolta.net ,,Ég þekki líka lífið hér á Akureyri og kann vel við mig hjá KA," bætti Sandor við.
Þetta verða að teljast mjög góð tíðindi en það er öllum liðum mikilvægt að hafa traustan markmann milli stanganna en óhætt er að segja að Sandor hafi verið lykilmaður undanfarin þrjú ár hjá liðinu