Sigbjörn Gunnarsson fyrrverandi alþingismaður og sveitarstjóri er látinn, 57 ára að aldri. Hann lést á
Sjúkrahúsinu á Akureyri sunnudaginn 15. febrúar s.l. Sigbjörn var kjörinn á Alþingi fyrir Alþýðuflokkinn í
Norðurlandskjördæmi eystra árið 1991 og sat á þingi til ársins 1995 og var m.a. formaður fjárlaganefndar um tíma. Hann var
sveitarstjóri Skútustaðarhrepps í átta ár og sveitarstjóri Þingeyjarsveitar í þrjú ár.
Sigbjörn starfaði m.a. sem kennari við Gagnfræðaskólann á Akureyri og var kaupmaður á Akureyri. Hann gegndi jafnframt ýmsum
trúnaðarstörfum, sat í aðalstjórn KA, í stjórn Golfklúbbs Akureyrar og Golfklúbbs Mývatnssveitar. Þá átti hann
sæti í íþróttaráði Akureyrar og í stjórn KSÍ um tíma. Sigbjörn kvæntist Guðbjörgu
Þorvaldsdóttur verslunarmanni árið 1972. Þau eiga fjögur börn, þrjár dætur og einn son, auk þess sem hann átti einn son
fyrir.
Knattspyrnufélag Akureyrar sendir fjölskyldu Sigbjörns innilegar samúðarkveðjur.
Sigbjörn Gunnarsson