Sigfús Ólafur Helgason ráðinn framkvæmdastjóri KA

Sigfús Ólafur Helgason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri KA. Stjórn félagsins gekk frá ráðningu hans í gær og komst hún að einróma niðurstöðu. Sigfús var einn átta umsækjenda um stöðu framkvæmdastjóra KA, en umsóknarfrestur rann út í síðustu viku. Síðasti starfsdagur Gunnars Jónssonar, framkvæmdastjóra KA, var í gær, en þó er ljóst að hann mun um hríð verða með annan fótinn í KA-heimilinu og koma nýjum framkvæmdastjóra inn í starfið.

“Það gleður mig að sjálfsögðu mjög hversu óskoraðan stuðning ég fékk frá aðalstjórn KA til þess að takast á við þetta starf og óneitanlega kemur hann mér skemmtilega á óvart, enda ekki á hverjum degi sem formaður og framkvæmdastjóri Þórs er ráðinn framkvæmdastjóri KA. Þetta bar mjög brátt að og ég var ráðinn á fundi aðalstjórnar KA í dag (gær). Það vissi það ekki nokkur maður innan Þórs að ég hefði sótt um þessa stöðu, af ýmsum ástæðum taldi ég rétt að halda því leyndu. Mér hefur því ekki gefist ráðrúm til þess að segja af mér embætti formanns og starfi framkvæmdastjóra Þórs, en ég mun að sjálfsögðu ganga í það strax á morgun (í dag),” sagði Sigfús Ólafur eftir fund aðalstjórnar KA í gær.

- Má ekki búast við hörðum viðbrögðum í herbúðum Þórs þegar þessi ráðning spyrst út?

“Jú, ef ég þekki mína menn rétt, þá verða þeir ekki glaðir. En það verður þá svo að vera. Stundum þarf maður að taka erfiðar og óvinsælar ákvarðanir. Ég tel mig vera kominn með nokkuð harðan skráp eftir að hafa staðið í eldlínunni hjá Þór um hríð og get vel þolað nokkrar snarpar gusur til viðbótar. Ég er ekki óvanur því.”

- En hver er ástæðan fyrir því að þú sóttir um starf framkvæmdastjóra KA?

“Ástæðan er einföld. Ég hef alltaf haft sterkar taugar til KA, þó svo að ég sé formaður Þórs. Það vill svo til að mínir uppáhalds litir eru gulur og blár! Þessu hef ég haldið hjá mér, hef af eðlilegum ástæðum ekki flíkað því mikið! En nú er mér óhætt að láta það flakka. Síðan er það ekkert launungarmál að við Gunnar Jónsson höfum, frá því ég tók að mér framkvæmdastjórn í Þór, unnið mjög náið saman. Ég hef notið ómældrar þekkingar Gunnars og hann hefur veitt mér góða innsýn í reksturinn hjá KA. Ég tel mig því vera vel í stakk búinn til þess að takast á við þetta nýja starf. Einnig get ég nefnt og það hefur vart farið framhjá nokkrum manni að ég hef ekki verið sáttur við þær framkvæmdir sem eru í gangi á Þórssvæðinu. Ég vil ekki og get ekki tekið ábyrgð á því sem þarna er að gerast og því tel ég rétt að víkja núna og láta aðra um stjórnina.”

- Hvenær reiknar þú með að taka við nýja starfinu?

“Það er ekki alveg ljóst á þessari stundu og í raun er það undir aðalstjórn Þórs komið hvenær ég fæ mig lausan frá félaginu og get farið að snúa mér að nýjum verkefnum í KA-heimilinu. Ég hlakka mikið til þess að takast á við þetta starf og vinna með því góða fólki sem stendur í eldlínunni í KA,” sagði Sigfús Ólafur Helgason, nýráðinn framkvæmdastjóri KA.