Sjö fyrirtæki gera samstarfssamninga við yngriflokkastarf KA í knattspyrnu

Myndina tók Þórir Ó. Tryggvason við undirritun styrktarsamninganna. Við borðið sitja frá vinstri: Fr…
Myndina tók Þórir Ó. Tryggvason við undirritun styrktarsamninganna. Við borðið sitja frá vinstri: Fríður Leósdóttir, f.h. Brynju ehf., Ingvar Már Gíslason, markaðsstjóri Norðlenska, Óskar Þór Halldórsson, formaður yngriflokkaráðs KA í knattspyrnu, Sævar H

Yngriflokkaráð KA í knattspyrnu hefur gert samstarfssamninga við sjö fyrirtæki á Akureyri.. Skrifað var undir samningana í 80 ára afmælishófi KA á Akureyri 8. janúar sl.

Þau fyrirtæki sem leggja yngriflokkastarfi KA lið næstu ár eru Íslensk verðbréf, sem verður aðalstyrktaraðili yngriflokkastarfsins, Höldur/Bílaleiga Akureyrar, Norðlenska, Brynja ehf., Þekking og Halldór Ólafsson, úrsmiður. Einnig leggur KEA yngriflokkastarfinu í knattspyrnu lið eins og annarri starfsemi innan KA, en samningur þess efnis var einnig undirritaður á 80 ára afmælishófi KA.

Yngriflokkastarf KA í knattspyrnu hefur verið að eflast á undanförnum árum. Iðkendum hefur fjölgað umtalsvert og mun áfram fjölga með stækkun Naustahverfis og einnig hefur félagið sótt í sig veðrið inni á vellinum. Nægir þar að nefna að síðasta sumar varð KA Íslandsmeistari í þriðja flokki karla og 5. flokkur KA lék til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn. Aðrir flokkar hafa einnig staðið sig prýðilega.

„Þessir samningarr eu okkur sem störfum að knattspyrnunni í yngri flokkum í KA afar mikilvægir. Staðreyndin er sú að við gætum ekki haldið úti svo öflugu starfi ef slíkuri stuðningur úr atvinnulífinu kæmi ekki til. Stuðningur þessara fyrirtækja er til fyrirmyndar og eftirbreytni. Þetta gerir okkur kleift að halda áfram að efla og bæta okkar starf í þágu iðkenda og samfélagsins alls,“ segir Óskar Þór Halldórsson, formaður yngriflokkaráðs KA í knattspyrnu.

Við undirritun styrktarsamninganna sagði Sævar Helgason, framkvæmdastjóri Íslenskra verðbréfa, meðal annars: „Íþróttafélög gegna afar mikilvægu hlutverki í okkar huga og væntanlega í huga allra sem eiga börn. Þau gegna m.a. mjög mikilvægu forvarna- og uppeldishlutverki, því þátttaka í íþróttum kennir börnum hvernig á að koma fram í hóp, kennir þeim að sigra og tapa og einnig að bera virðingu bæði fyrir samherjum sem og mótherjum. Þarna hlotnast þeim því afar dýrmæt reynsla sem nýtist þeim í leik og starfi á lífsleiðinni.
Það er því mikil ábyrgð sem hvílir á þeim sem starfa í þágu íþróttafélaga og það starf sem unnið hefur verið hjá KA hefur verið til fyrirmyndar, það þekki ég af eigin reynslu. Þarna vinnur stór hópur mikið starf, að stórum hluta í sjálfboðavinnu og þeim aðilum verður aldrei fullþakkað fyrir sitt starf í þágu KA og þar með samfélagsins í heild.
Við erum afar stolt af þeim samningi sem við erum nú að gera við yngri flokka KA. Íslensk verðbréf hafa verið með styrktarsamning við félagið undanfarin fjögur ár en nú var ákveðið að stækka samninginn verulega og að Íslensk verðbréf yrðu aðalstyrktaraðili yngri flokka KA.“