Við útnefningu Íþróttamanns Akureyrar sl. miðvikudagskvöld voru fjórir einstaklingar heiðraðir fyrir störf þeirra að íþrótta- og æskulýðsmálum í bænum. Þetta eru Árni Jónsson, Golfklúbbi Akureyrar, Gunnar Viðar Eiríksson Sundfélaginu Óðni, Stefán Jónasson Skíðafélagi Akureyrar og Skjöldur Jónsson KA.
Í hófinu sl. miðvikudagskvöld las Kristinn Svanbergsson, íþróttafulltrúi, upp eftirfarandi upplýsingar um Skjöld Jónsson:
„Skjöldur Jónsson er fæddur árið 1932. Hlutur hans í sögu frjálsra íþrótta og körfubolta á Akureyri er
mikill og þakkarverður. Hann var fjölhæfur frjálsíþróttamaður og keppti í þeim í nær 20 ár. Hann
keppti í nær öllum hlaupagreinum og setti fyrstu Akureyrarmetin í 110 og 400 m grindahlaupum og Íslandsmet í boðhlaupssveitum drengja
í 4x400m, 4x800m og 4x1.500m hlaupum um 1950. Skjöldur var einnig oft á verðlaunapalli fyrir spjótkast og þrístökk.
Eftir keppnisárin starfaði hann af dugnaði við framkvæmd frjálsíþróttamóta um áratugaskeið með skeiðklukku og
málband í hönd.
Annað áhugamál Skjaldar var körfubolti sem barst til landsins 1949. Þegar hann og Hörður Túliníus komu heim úr vinnu frá
Keflavíkurflugvelli tóku þeir körfuboltann með sér til Akureyrar og hófu iðkun hans hér í bæ. Skjöldur var einnig
liðsstjóri og forystumaður í starfsemi körfuboltadeildar KA næstu árin og lék þar í liði sem var mjög öflugt og
nær ósigrandi á Norðurlandi.
Auk fyrrnefndra starfa Skjaldar fyrir deildir KA átti hann sæti í aðalstjórn KA árin 1957-58 og hann hefur alla tíð verðið boðinn og
búinn að starfa fyrir félagið og sagði aldrei nei við nokkurri beiðni frá KA.
Skjöldur hefur einnig starfað mikið fyrir Skautafélag Akureyrar og Golfklúbb Akureyrar og því óhætt að segja að hann hafi komið
víða við í íþróttalífi á Akureyri.“
Knattspyrnufélag Akureyrar óskar Skildi Jónssyni innilega til hamingju með þessa viðurkenningu um leið og honum eru þökkuð öll hans miklu og vel unnu störf fyrir félagið.
-ÓÞH