Eins og undanfarin ár verður KA með leikjaskóla í boði fyrir hressa krakka í sumar en skólinn fer fram í Naustaskóla en skólinn er haldinn í sjö eins vikna námskeiðum.
Leikjaskóli KA í Naustaskóla:
Sama snið verður á leikjaskólanum í Naustaskóla og í fyrra en KA verður með sjö eins vikna námskeið, fyrsta námskeiðið hefst 15. júní. Fyrsta námskeiðið sem og það síðasta eru bara fjórir dagar (17. júní frídagur og 31. júlí föstudagur fyrir versló) og kosta þau námskeið því minna.
Öllum börnum sem æfa knattspyrnu hjá félaginu verður gefinn kostur á að fara á æfingu, annaðhvort á skólatíma eða þegar skólanum lýkur. Fá krakkarnir fylgd með starfsmönnum skólans.
Vika 1: 15. - 19. júní (4 dagar)
Vika 2 : 22. - 26. júní
Vika 3 : 29. júní - 3. júlí
Vika 4 : 6. - 10. júlí
Vika 5 : 13. - 17. júlí
Vika 6 : 20. - 24. júlí
Vika 7 : 27. - 30. júlí (4 dagar)
Verð fyrir hverja viku er 11.500 kr fyrir utan þær vikur sem eru 4 dagar en þær kosta 9.900 kr
Helstu upplýsingar:
Leikjaskólinn fer allur fram í íþróttahúsinu við Naustaskóla. Mæting er við inngang íþróttahússins.
Skólinn opnar 08:00 á morgnanna og er skólanum lokið 12:30 hvern dag.
Dagur Gautason er umsjónarmaður skólans.
Skólinn er eingöngu fyrir krakka fædda 2015-2020
Hámarksfjöldi á hvert námskeið er 100 börn - ekki er hægt að lofa aðgöngu fyrir börn umfram 100.