Það er föstudagur 11.apríl og vorið því miður langt undan, þegar ég sest inn á hinn fornfræga skemmtistað Akureyringa, Allann, sem nú er kínverskt veitingahús. Þegar húsið var og hét og upp á sitt besta á öldinni sem leið, hefur líklega engan órað fyrir því að kínverskur matur yrði á boðstólnum á Íslandi.
Ég átti stefnumót við Stefán Gunnlaugsson nýkjörin formann KA sem bauð mér á hlaðborð. Eftir að búið var að borða komum við okkur í stellingar og ég kveikti á upptökutækinu. Ég spyr Stefán Gunnlaugsson, sem nú er að taka við formennsku eftir að tæplega 40 ár síðan hann var það síðast, út í gömlu dagana og hvernig KA hafi verið þegar hann var að byrja. Stefán sagði mér frá því þegar hann byrjaði árið 1969, „Ég byrjaði sem varaformaður félagsins árið 1969 með Herði Túleníus, en ég sá að mínum hæfileikum væri betur komið í félagsstörfum heldur en í fótboltanum, en ég hafði spilað upp yngri flokkana frá því að ég var lítill.“ Þegar Stefán kom fyrst að félaginu var það ekki deildarskipt og hafði KA í raun og veru enga aðstöðu, „þannig að þeir sem eru að kvarta núna undan aðstöðinni í KA heimilinu og á svæðinu þurfa ekki að líta lengra en þetta aftur í tímann, við höfðum enga aðstöðu bara lítið herbergi niður í bæ." Stefán stoppaði stutt í aðalstjórn, tók við sem formaður 1970 – 71 en hætti afskiptum af stjórnarstörfum þangað til, 1975 þegar félaginu var deildarskipt og fór þá að vinna í stjórn fótboltans. Hann hefur samanlagt starfað fyrir fótboltann í 17 ár, þar af 15 sem formaður. Einnig sat hann 9 ár í stjórn KSÍ og rak handknattleiksdeild KA í eitt ár. Á áttunda og níunda áratugnum átti sér stað mikil uppbyggingar starf á KA – svæðinu sem við þekkjum í dag. Stefán var formaður bæði vallar og húsbyggingarnefndar á þessum árum og stóð í eldlínunni þegar félagsheimilið var byggt. Hann hefur einnig setið í aðalstjórn félagsins og sat á sínum tíma í 9 ár sem gjaldkeri, „þannig að maður er svo sem enginn nýgræðingur á þessu sviði“ bætir Stefán stoltur við þegar hann rennir yfir ferilinn.
Ég spyr Stefán næst út í hvernig honum finnist félagið standa núna þegar hann kemur aftur inn sem formaður 40 árum síðar. „Ja, eins og í flestum félögum skipst á skin og skúrir. Sem betur fer þegar ég hef verið í forustu hafa þetta verið tiltölulega góð ár en svo hefur mér tekist að forða mér áður en að koma kannski svona síðri tímar, en mér finnst einhvernvegin núna, frá síðasta hausti og svo til dagsins í að hljóðið sé að batna í mönnum. Menn eru að vakna til lífsins og gera sér grein fyrir því að við þurfum að taka á málunum og gera okkur grein fyrir því að árangur kemur ekki að sjálfu sér. Þess vegna tók ég að mér að leiða félagið núna og ætla að leggja mig fram um að félagið komist aftur á góða braut bæði árangurslega og ekki síst félagslega.“
En hvar telur nýr formaður að þurfi að laga til?„Ja, ég ætla náttúrulega að byggja á því sem vel hefur verið gert en auðvitað er eitthvað sem mér finnst að þurfi að laga. Fyrst og fremst finnst mér að það þurfi að virkja fleiri, því þetta er heilmikið starf að reka svona félag, þess vegna finnst mér mjög brýnt að efla þessa félagsvitund og nýta húsið okkar og þessa aðstöðu sem við höfum.“ Stefáni finnst félagsandinn í félaginu síðustu 10 – 15 árin hafa minnkað og vill að breyting verði þar á. „Ég hefði viljað sjá miklu fleiri koma í húsið okkar og hittast, þó það sé ekki í nema 5 – 10 mínútur og spjalla.Ég mun reyna að stuðla að því ásamt nýrri stjórn og framkvæmdastjóra því ég held að það sé mikill styrkur fyrir félagið.“Stefán hefur það einnig í hyggju að bjóða upp á opna fundi vikulega í KA – heimilinu í hádeginu, líklega á mánudögum.
Akureyri Handboltafélag hefur verið deiluefni síðan samstarfið hófst fyrir tveim árum, ég spurði Stefán hvað hann vildi gera í þeim málum.„Það verður að segjast að handbolti innan KA hefur alltaf gengið illa fjárhagslega, þótt hann hafi komið hvað best út fyrir félagið árangurslega. Þannig að þegar þessi deild var rekin ein og sér undir KA safnaði hún ætíð skuldum þrátt fyrir góðan árangur þannig að félagið komst í miklar skuldir vegna handboltans. Þó svo að ég hafi ekki verið mjög bjartsýnn að þessi leið tækist fannst mér það vera þess virði að reyna hana. Ég held að mjög margir innan beggja félaga hafi dregið lappirnar og ekki trúað að þetta gæti gengið. Ég vil allavega gefa þessu séns áfram og að aðalstjórnir félaganna komi meira að rekstrinum og að Akureyri Handboltafélag fái meiri stuðning innan félaganna, hjálpa til við kostnað o.s.frv. Í lauslegri áætlun sýnist mér innkoma félagsins vera ágæt, um 24 milljónir en útgjöld um 30. Auðvitað eru 6 milljónir mikið tap en ég trúi því að það þurfi ekki mikið til að vinna þetta á núllinu.“
Ég spjallaði einnig við Stefán um uppbygginguna á KA – svæðinu sem leggst vel í hann, „mér finnst þetta mjög spennandi og ég mun bara einhenda mér í þetta og þetta mun ganga vel hjá okkur.“Stefán bætir við, „mér hefur alltaf tekist vel að vinna með bæjaryfirvöldum, ég er orðin ansi þreyttur á því að það sé eingöngu verið að skíta í bæjaryfirvöld og segja að þeir standi sig aldrei nógu vel. Auðvitað er alltaf hægt að gera betur en ef við erum sanngjarnir þá er hægt að segja að margt hafi verið vel gert. Ef yfirvöld ætla að fara setja svona mikið að peningum í aðstöðuna fyrir KA og Þór þá held ég að það sé bara glæsilegt. Ég held að það sé kominn tími á að við þökkum fyrir okkur, hvað þau sýna mikinn skilning. Ég vil bara nota tækifærið og þakka bæjaryfirvöldum fyrir og hlakka til þess samstarfs sem framundan er.“
Að lokum ræddum við Stefán um Jakobssjóðinn sem hefur verið einskonar falinn fjársjóður innan félagsins,„ já, það er áhugi fyrir því að gera Jakobssjóðinn öflugri og að hann muni þá helst nýtast til styrktar yngriflokka í knattspyrnunni, ef það verður samþykkt, en Jakob var náttúrulega fyrst og fremst knattspyrnumaður. Ný stjórn sem mynduð var í kringum sjóðinn hefur hugmyndir að efla sjóðinn og halda minningu Jakobs á lofti og um leið styrkja unga knattspyrnumenn.“
Það er greinilegt að Stefán ætlar að hella sér út í starfið sem formaður KA er og ætlar að efla starfið til muna, undir lok viðtalsins sagði hann þetta, „ að lokum vil ég bara hvetja unga sem aldna KA menn að koma oftar í KA heimilið og fylgjast með því sem er að gerast og taka þátt í umræðunni. Reynum að virkja félagsandann.“
Við þökkum Stefáni fyrir og óskum honum og nýrri stjórn góðs gengis. Ásamt Stefáni mynd þau Hrefna Torfadóttir, Tryggvi Gunnarsson, Erlingur Kristjánsson, Guðmundur B Guðmundsson og Ragnheiður Júlíusdóttir nýja aðalstjórn KA. Að lokum vil ég nefna það að viðtöl verða fastur liður hér á síðunni í sumar og er stefnan sett á að ræða við nýjan framkvæmdastjóra á næstunni.
Sigurður Þorri Gunnarsson