Þór - KA í kvöld !

Í dag er Akureyrarslagur af bestu gerð. Þór og KA mætast í þriðju umferð VISA-bikars karla á Akureyrarvellinum kl. 19:15. Leikurinn verður í beinni textalýsingu hér á síðunni.

 Þór og KA drógust saman í þriðju umferð VISA-bikarsins á dögunum og mætast því í kvöld í hörkuleik en síðustu leikir þessara liða hafa verið stórskemmtilegir. Allir á völlinn!