Annar flokkur Þórs/KA sigraði KR-inga auðveldlega á Akureyrarvelli í gær í úrslitaleik VISA-bikarkeppninnar með fjórum mörkum gegn einu.
Markadrottningin Rakel Hönnudóttir var í góðum gír í leiknum og setti þrjú mörk og fjórða markið skoraði Freydís Anna Jónsdóttir.
Stelpunum og þjálfurum þeirra, Dragan og Siguróla, er óskað til hamingju með bikarinn!