Þremur leikjum úr fjórðu umferðinni í fyrstu deild karla hefur verið frestað þar til 19. júní vegna þess að U19 ára landsliðið heldur í dag til Noregs þar sem það mun leika í milliriðli fyrir EM.
Nokkur lið úr fyrstu deildinni eiga leikmenn í þessum hópi og hefur því þremur leikjum í

umferðinni verið frestað en þeir áttu að fara fram næstkomandi fimmtu- og föstudag.
KA átti að leika á föstudaginn nk. gegn Þrótturum en þar sem Almarr Ormarsson leikmaður okkar manna er í hópnum hefur þeim leik verið frestað.
Næsti leikur KA liðsins er því heimaleikur gegn Fjölnismönnum föstudaginn 7. júní eftir tæpar tvær viku.