Til minningar um Steindór Gunnarsson - Kveðja frá K.A.

Steindór Gunnarsson
Steindór Gunnarsson

Góður vinur og félagi er látinn langt fyrir aldur fram. Steindór Gunnarsson varð bráðkvaddur laugardaginn 19. mars síðastliðinn. Í okkar hóp er rofið stórt skarð og minnumst við KA menn hans með hlýhug og virðingu. 

Steindór var ötull félagsmaður, einstaklega trúr sínu félagi og vann af dugnaði öll þau störf er hann tók að sér. Hann var einstaklega þægilegur og ljúfur í viðmóti. Hann bar hag félagsins mjög fyrir brjósti og þegar við hittumst, ýmist á förnum vegi eða uppi í KA húsi ræddum við löngum um félagið og sér í lagi var honum knattspyrnudeildin hjartfólgin og bar hann hag leikmanna sérstaklega fyrir brjósti.

Fyrir tæpum fjörutíu árum síðan þegar ég var nokkra mánuði í Reykjavík kynntist ég Steindóri í gegnum Guggu vinkonu mína, sem var við nám í Reykjavík þá en hún var trúlofuð Bjössa heitnum bróður Steindórs.  Ég var einnig trúlofuð þá. Bjössi var á Akureyri og minn kærasti í Svíþjóð og fannst mér stundum að Steindór, sem þá var við lögfræðinnám við HÍ, væri þarna í hlutverki stóra bróður að passa okkur. Þegar illa lá á okkur, sennilega vegna þess að við söknuðum þeirra kærastanna okkar, reyndi Steindór að hressa okkur og kæta eins og stórum bróður sæmir. Ég veit ekki hvort þeir Magnús Gauti og Sigbjörn, kærastar okkar og svo eiginmenn, hafi nokkru sinni þakkað Steindóri.  Kunningsskapur okkar Steindórs og síðar vinátta hélst alla tíð. 

Ég minnist þessa góðhjartaða, ljúfa manns með söknuði og hlýhug.

 

Deyr fé,

deyja frændur,

deyr sjálfur ið sama

en orðstýr

deyr aldregi

hveim er sér góðan getur.

 

Deyr fé,

deyja frændur,

deyr sjálfur ið sama.

Eg veit einn

að aldri deyr,

dómur um dauðan hvern.

(Úr Hávamálum)

 

Fyrir hönd Knattspyrnufélags Akureyrar votta ég Guðrúnu, móður Steindórs, systkinum og öðrum fjölskyldumeðlimum mína innilegustu samúð.

 

Hrefna Gunnhildur Torfadóttir

formaður KA