Tillögur að uppbyggingu á KA svæðinu tilbúnar

Fram eru komnar tillögur um uppbyggingu á íþróttasvæði KA frá bæjarvöldum. Þær geri ráð fyrir að haustið 2008 verði hafist handa að útbúa gervigrasvöll með flóðlýsingu og hita. Þeim framkvæmdum verður lokið vorið 2009. Á sama tíma verði Wembley tekinn upp og endurnýjaður. Þá er gert ráð fyrir því að stúka verði reist norðan við gervigrasvöllin á árunum 2011 - 2013.

Á sameiginlegum fundi aðalstjórnar KA og knattspyrnudeidlar KA var fjallað um þessar tillögur Akureyrarbæjar og voru stjórnarmenn sammála um að þetta væri stórt skref í uppbyggingu á íþróttasvæði KA og tekur það til mikilla framfara fyrir íþróttalífið fyrir KA og í bænum allment.

Fundur bendir hinsvegar á að samkvæmt leyfiskerfi KSÍ verður ekki hægt að keppa á völlum án stúku frá árinu 2010. 

Á meðfylgjandi mynd sést uppdráttur af gerfigrasvellinum og fyrirhugaðri stúku.