Í síðustu viku voru kynntar tillögur um uppbyggingu á svæðum félaganna næstu árin. Lagðar voru fram tillögur til KA annarsvegar og Þórs hinsvegar. Aðalstjórn KA samþykkti tillögurnar og nokkur ánægja ríkti í herbúðum félagsins en Þórsarar höfnuðu hinsvegar tillögum um uppbyggingu á þeirra svæði.
Nú hafa þær raddir heyrst að umræður um þessi mál séu aftur komnar á byrjunarstig og að það þurfi að byrja upp á nýtt á vinnslu þessara mála.