Tilnefningar deildanna til Böggu-bikarsins

Krakkarnir sem voru tilnefndir 2014 ásamt Hrefnu
Krakkarnir sem voru tilnefndir 2014 ásamt Hrefnu

Böggubikarinn, eru tveir farandbikarar, gefnir af Gunnari Níelssyni, Ragnhildi Jósefsdóttur og börnum þeirra til minningar um Sigurbjörgu Nielsdóttur, Böggu, systur Gunnars. Bögga var fædd þann 16. júlí 1958 og lést þann 25. september 2011. 

Böggubikarinn skal veittur þeim einstaklingum, pilti og stúlku, sem eru á aldrinum 16- 19 ára og þykja efnileg í sinni grein en ekki síður mjög sterk félagslega. Einstaklingum sem eru til fyrirmyndar á æfingum og í keppnum og eru bæði jákvæð og hvetjandi.

Tilnefnd frá knattspyrnudeild:
Aron Dagur Birnuson
Æsa Skúladóttir

Tilnefnd frá blakdeild:
Hristiyan Dimitrov
Unnur Árnadóttir

Tilnefnd frá handknattleiksdeild:
Sigþór Gunnar Jónsson
Aldís Ásta Heimisdóttir