Blakdeild KA tilnefnir Birnu Baldursdóttur sem sinn fulltrúa í tilnefningu á íþróttamanni KA fyrir árið
2010. Birna hefur verið einn af máttarstólpum í liðinu undanfarin ár og hefur einnig verið valin í landslið Ísland, bæði í
hefðbundu blaki og strandblaki. Hún var valin leikmaður ársins hjá Blaksambandi Íslands árið 2010. Einnig hefur þessi ótúlega
íþróttakona verið í landsliði Íslands í íshokkí undanfarin ár.
Handknattleiksdeild - Kolbrún Gígja Einarsdóttir
Kolbrún Gígja Einarsdóttir er ein efnilegasta handboltakona félagsins. Hún hefur æft og leikið handbolta með KA upp alla yngri flokka og er
nú í 3.flokki og meistaraflokki. Hún hefur alla tíð æft mjög vel og í vetur æfir hún með báðum flokkum, auk
styrktaræfinga, 6-8 sinnum í viku. Síðastliðið keppnistímabil hóf hún að leika með meistaraflokki KA/Þórs,
þá 16 ára gömul, og á þessu tímabili er hún einn besti maður liðsins. Kolbrún hefur leikið undanfarin ár með
unglingalandsliðum Íslands og er nú í U-19 ára landsliðinu.
Júdódeild - Helga Hansdóttir
Árangur Helgu á árinu er frábær en hann er eftirfarandi:
- Íslandsmót fullorðinna, 1. sæti í -57kg og 2. sæti í opnum flokki.
- RIG international/Afmælismót JS fullorðinnaÍ, 1. sæti í -57kg.
- Norðurlandamót yngri en 20 ára, 3. sæti í -57kg.
- Opna danska yngri en 20 ára, 1. sæti í opnum flokki og 3. sæti í -63kg.
- Opna sænska yngri en 20 ára, 5. sæti í -63kg.
Knattspyrnudeild - Sandor Matus
Sandor Matus, markmaður meistaraflokks karla, var útnefndur leikmaður ársins í lokahófi knattspyrnumanna í KA síðastliðið haust. Sandor
hefur staðið á milli stanganna í KA-markinu frá árinu 2005 þegar hann samdi fyrst við félagið til tveggja ára. Hann
endurnýjaði samning sinn síðan aftur árið 2008 og í haust skrifaði Sandor undir nýjan þriggja ára samning við
félagið. Þetta sýnir öðru betur staðfast KA-hjarta Sandors, sem hefur, þrátt fyrir að haf boðist gull og grænir skógar
hjá öðrum félögum, haldið tryggð við KA. Sandor er eins og allir vita frábær markvörður sem hefur reynst KA drjúgur
liðsmaður. Og þá er hann liðinu mikilvægur félagi. Hann er óspar á hvatningu og að miðla reynslu sinni til yngri leikmanna. Auk
þess að spila með meistaraflokki hefur Sandor undanfarin ár séð um markmannsþjálfun yngri flokka félagsins.