Tilefningar til íþróttamanns KA 2009
Blakdeild
Auður Anna Jónsdóttir
Auður er aðeins 16 ára en engu að síður er hún langstigahæst í allra leikmanna í MIKASA DEILDINNI eftir fyrstu 4
umferðirnar með 79 stig skoruð. Auður spilaði með U19 ára landsliði Íslands á NEVZA mótinu í Danmörku í
október Auður er án efa ein allra efnilegasta blakkona sem komið hefur fram hjá Blakdeild KA.
Piotr Slawomir Kempisty
Piotr var valinn besti leikmaður 1. deildar karla 2009 valin af leikmönnum og þjálfurum deildarinnar. Piotr er stigahæstur í MIKASA deild karla eftir
fyrstu fjórar umferðir þessa keppnistímabils.
Handknattleiksdeild
Martha Hermannsdóttir
Martha hefur verið fyrirliði í meistaraflokksliði KA/Þór í vetur en liðið keppir að nýju í efstu deild. Martha er lykilmaður
og foringi liðsins í vörn og sókn, æfir vel og er fyrirmynd yngri stelpnanna í liðinu.
Arna Valgerður Erlingsdóttir
Arna Valgerður er einn efnilegasi leikmaðurinn í meistaraflokki og leikur einnig með 3.fl.þar sem hún er kjölfestan í liðinu. Hún hefur
leikið með U-20 ára liði Íslands á árinu.
Júdódeild
Helga Hansdóttir.
Helga er næst stigahæsta júdókona ársins á Íslandi og var valin efnilegasta júdókona ársins 2009. Hún hlaut m.a.
gullverðlaun í fullorðinsflokki -57kg á Íslandsmóti og Landsmóti UMFÍ. Hún hlaut gullverðlaun í flokki 15-16 ára
-57kg á Íslandsmóti og gullverðlaun í opnum flokki á Opna danska 15 – 16 ára. Einnig hlaut hún gullverðlaun í
fullorðinsflokki -57kg á Kyumóti JSÍ ásamt því að vinna til fleiri verðlauna á árinu.
Knattspyrnudeild
Haukur Heiðar Hauksson
Haukur Heiðar var kosinn besti leikmaður KA í knattspyrnu keppnistímabilið 2009. Haukur Heiðar var fastamaður í landsliði Íslands u/19 ára.
Þrátt fyrir að vera ungur að árum hefur hann vakið mikla athygli og ef hann heldur áfram að styrkjast sem leikmaður er eflaust stutt í að
hann vekji áhuga erlendra liða.