Tilvalin jólagjöf!

Hér er smá hugmynd fyrir þá sem eiga eftir að finna síðustu jólagjafirnar..! Hvað er betra en að eiga flott KA-rúmföt? Þú sefur ekki bara vel í þeim heldur öðlast þú sanna KA anda en mætir menn segja að það komist næst því að öðlast heilagan anda! Rúmfötin kosta aðeins 1.500 kr og fást í KA heimilinu. Nú eru síðustu forvöð að tryggja sér eintak! Ef einhverjir lesa þetta eftir að KA-heimilið lokar er hægt að hafa samband við framkvæmdarstjóra í 899-3482. (Einnig er sniðugt að gefa KA konunni ofnhanska og pottaleppa, nú eða fyrir konurnar að gefa körlunum slíkar græjur... þá kannski gera þeir eitthvað í eldhúsinu!)

Einnig er hægt að sjá fleiri sniðugar KA vörur hér.