Bæjarstjórinn á Akureyri, Sigrún Björk Jakobsdóttir, skrifaði í dag undir uppbyggingar- og framkvæmdasamninga við Íþróttafélagið Þór og Knattspyrnufélag Akureyrar. Í samningi Akureyrarbæjar við Þór kemur einnig fram að unnið verður að uppbyggingu frjálsíþróttaaðstöðu á félagssvæði Þórs fyrir Landsmót UMFÍ sem haldið verður á Akureyri sumarið 2009.
Í samningnum við Þór kemur fram að Akureyrarbær muni kosta og sjá um eftirfarandi framkvæmdir á félagssvæði Þórs á samningstímanum eða frá 2007-2012:
Áætlaður heildarkostnaður þessara framkvæmda er 331,5 milljónir en þar af mun uppbygging frjálsíþróttaaðstöðu fyrir Landsmót UMFÍ kosta um 150 milljónir. Samstarfshópur Þórs og Akureyrarbæjar mun fara yfir reynsluna af grasknattspyrnuvelli á svæðinu eftir þriggja ára notkun. Ef sameiginleg niðurstaða þessara aðila er sú að náttúrulegt gras henti ekki á keppnisvöll félagsins mun Akureyrarbær taka upp viðræður við Þór um hvort setja skuli gervigras á völlinn. Sammælist samningsaðilar hins vegar um að náttúrulegt gras henti á vellinum, mun Akureyrarbær setja upp flóðlýsingu við hann.
Í samningnum við KA kemur fram að Akureyrarbær muni kosta og sjá um eftirfarandi framkvæmdir á félagssvæði KA:
Áætlaður heildarkostnaður þessara framkvæmda er 171 milljón króna. Akureyrarbær mun einnig reisa stúkubyggingu sem fullnægir kröfum leyfishandbókar KSÍ við keppnisvöll KA á árunum 2011-2012.