Ár hvert fer fram glæsilegt kvennakvöld Þórs og KA og afhenti kvennakvöldsnefndin kvennaliðum félaganna veglega styrki á leik Þórs/KA og ÍBV um helgina. Í ár safnaðist 5,6 milljónir á kvöldinu og fékk hver deild fékk í ár styrk að upphæð 1,4 milljónir sem kemur sér ansi vel í rekstri liðanna okkar.
Að Kvennakvöldinu standa kvennaliðin fjögur í boltaíþróttunum, knattspyrnulið Þórs/KA, handknattleikslið KA/Þórs, körfuknattleikslið Þórs og blaklið KA. Nefndarkonur Kvennakvöldsins afhentu fulltrúum þessara liða afraksturinn af kvöldinu. Öllum sem að Kvennakvöldinu komu eru hér með færðar bestu þakkir fyrir stuðninginn. Hann er ómetanlegur.
Markmið úthlutunar er að efla kvennastarf, styrkja aðstöðu, skapa tækifæri og tryggja að konur og stúlkur í íþróttum hafi aðgang að öflugum og faglegum umhverfum.
Nefndin vill koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sjálfboðaliða sem komu að undirbúningi og framkvæmd kvöldsins.
Einnig færum við okkar bestu þakkir til allra styrktaraðila kvöldsins.
Á myndinni frá vinstri eru fulltrúar frá deildunum sem tóku á móti styrkjunum ásamt fulltrúum frá Kvennakvöldsnefndinni, Eva Björk Halldórsdóttir kvennakvöldsnefnd, Kári Þorleifsson fyrir körfuknattleiksdeild Þórs, Bergrós Guðmundsdóttir og Lydía Gunnþórsdóttir fyrir handknattleiksdeild KA/Þór, Auður Pétursdóttir og Kara Árnadóttir frá blakdeild KA, Dóra Sif Sigtryggsdóttir frá knattspyrnudeild Þór/KA og Linda Guðmundsdóttir frá Kvennakvöldsnefnd.
Í ávarpi frá nefndinni segir meðal annars. „Við þetta tilefni vill Kvennakvöldsnefndin þakka öllum þeim sem koma að kvöldinu, styrktaraðilum, sjálfboðaliðum og öllum þeim frábæru konum sem mættu á viðburðinn, fyrir að gera þetta kvöld ógleymanlegt og að styrkja allar þessar frábæru íþróttakonur sem skipa þessi lið.“
Við viljum þakka þeim sem að kvöldinu koma kærlega fyrir þeirra frábæru og ómetanlegu vinnu. Það er alveg klárt að þessi styrkur mun hjálpa mikið til við að efla og styðja enn frekar við hið flotta starf sem unnið er í kvennaíþróttum á Akureyri.
Kvennakvöldsnefndina skipa þær Linda Guðmundsdóttir, Eva Björk Halldórsdóttir og María Kristín Davíðsdóttir.