Vel heppnað kynningarkvöld knattspyrnudeildar á föstudagskvöld

Frá kvöldinu
Frá kvöldinu

Síðastliðið föstudagskvöld var haldið kynningarkvöld Knattspyrnudeildar KA í KA-Heimilinu. Fjöldi fólks mætti á kvöldið og var liðið kynnt af Míló þjálfara. Formaður knattspyrnudeildar, Tómas Lárus tók einnig til máls ásamt fyrirliða KA, Elmari Dan og Ágústi Haraldssyni sem kynnti fótbolta Akademíu KA.

Þá var skrifað undir samstarfssaminga við Byko, KEA, N1 og Greifann.

Á eftir var boðið uppá veitingar og spjölluðu menn um fótbolta, komandi sumar og kosningar fram eftir kvöldi. Er það mál manna að þetta kvöld hafi verið virkilega vel heppnað.

Hægt er að sjá myndir frá kvöldinu undir "myndir"