Vellirnir eru fínir, segja vallarverðir KA

Þrátt fyrir mikla rigningu síðdegis í gær komu vellirnir ágætlega út í gær þegar vallarverðirnir Erlendur og Egill fóru á stjá. Egill hafði á orði að vellirnir litiu ótrúlega vel út eftir daginn, í spjalli mínu við hann í gær.

Starf vallarvarðanna á mótinu felst í því að halda völlunum við, þ.e. að merkja, laga hornfána og mörk o.fl. Þeir fara út á kvöldin þegar allir leikir eru búnir og aðhafast. Yfirleitt tekur umhirða um alla vellina 10, um 4 klst. 

Á morgun (í dag) er spáð frekar góðu veðri og hlíindum, þannig að við krossleggjum nú bara fingur og vonum að við munum ekki upplifa eins svakalega rignigu og í dag (í gær), bættu þeir við að lokum.