Yfirliðsbræður í KA-Heimilinu

Mánudaginn 12 maí ( annar í hvítasunnu ) kl.20 verður haldin söng og grínskemmtun í KA-heimilinu með þeim Yfirliðsbræðrum.


Yfirliðsbræður eru þeir Óskar Pétursson og Örn Árnason ásamt undirleikaranum Jónasi Þórir.

Samstarf þessara manna er ekki nýtt af nálinni en þeir hafa komið fram áður þó ekki undir nafninu
Yfirliðsbræður

Söng og grínskemmtun þessi er sú fyrsta í  langri tónleikaröð þeirra félaga á landsvísu en þar munu þeir fylgja eftir geisladiski þar sem þeir syngja lög  eftir Everly Brothers. Hafa þeir félagar samið íslenskan texta við þessi lög og eru textarnir einir og sér alveg frábærir.

Nafnið Yfirliðsbræður er klár og bein tilvísun í Everly Brothers og einnig má það koma fram að þeir félagar leggja þá meiningu í orðið að margar miðaldra konur falli hreinlega í yfirlið þegar þeir stíga á svið. En það er þó ekki vitað en eitt er víst að þessi skemmtun á eftir að kitla hláturtaugarnar og síðast en ekki síst á söngur þeirra eftir að ilja okkur um hjartarætur. Það er því algjör skyldumæting á þessa söng og grínskemmtun.

FORSALA AÐGÖNGUMIÐA ER Í EYMUNDSSON GLERÁRTORGI MIÐAVERÐ KR: 2.500