FH-ingar urðu Íslandsmeistarar í fimmta flokki karla (A- og B-liða) eftir nauman sigur á strákunum í KA á Leiknisvelli í Reykjavík á sunnudag. Leikur B-liðanna fór 3-2 fyrir FH og Hafnfirðingar höfðu einnig betur í viðureign A-liðanna 2-0. Engu að síður stóðu okkar strákar sig með miklum sóma og enginn munur á var á liðunum, þrátt fyrir að sigurinn hafi lent FH-megin.
Strákarnir í C-liði KA í 5. flokki spiluðu í úrslitakeppni C-liða í Reykjavík í gær og töpuðu báðum leikjum sínum - gegn Fjölni 1-4 og Breiðabliki 0-3.