Nýjustu myndböndin

Thumbnail
  • Almarr kominn heim
  • KA-varpið fékk Almarr Ormarsson í örlítið viðtal við undirskrift þriggja ára samnings þann 3. febrúar 2016.

Thumbnail
  • KA fótboltasumarið 2015
  • Hér má sjá nokkur tilþrif með knattspyrnuliði KA sumarið 2015. KA fór í úrslitaleik Lengjubikarsins, undanúrslit Borgunarbikarsins og endaði að lokum í 3. sæti 1. deildar. Þá voru stuðningsmenn liðsins magnaðir í sumar þar sem Schiöthararnir fóru fremstir í flokki.

    Lið KA sumarið 2015:
    Archange Nkumu, Atli Sveinn Þórarinsson, Baldvin Ólafsson, Benjamin James Everson, Bjarki Þór Viðarsson, Callum Williams, Davíð Rúnar Bjarnason, Elfar Árni Aðalsteinsson, Fannar Hafsteinsson, Gauti Gautason, Halldór Hermann Jónsson, Hilmar Trausti Arnarsson, Hrannar Björn Steingrímsson, Ívar Sigurbjörnsson, Ívar Örn Árnason, Josip Serdarusic, Jóhann Helgason, Juraj Grizelj, Orri Gústafsson, Ólafur Aron Pétursson, Pétur Heiðar Kristjánsson, Srdjan Rajkovic, Úlfar Valsson, Ýmir Már Geirsson og Ævar Ingi Jóhannesson.

    Þjálfarar:
    Bjarni Jóhannsson og Srdjan Tufegdzic

    Lag: Áfram KA menn eftir Bjarna Hafþór Helgason
    Flytjandi: Eyþór Ingi Gunnlaugsson

Thumbnail
  • KA - Valur 1-1, 3-5 víti (29. júlí 2015) Borgunarbikar undanúrslit
  • KA tók á móti Val í undanúrslitum Borgunarbikars karla þann 29. júlí 2015. 1. deildarlið KA hafði áður slegið út Breiðablik og Fjölni sem eru toppbaráttulið í Pepsi deildinni en þrátt fyrir það voru Valsmenn þó taldir líklegri til að fara áfram.

    Þetta var fjórða viðureign liðanna í bikarkeppni KSÍ og höfðu allir þrír leikirnir farið í framlengingu, KA sigraði í framlengingu árið 1984, Valsmenn urðu bikarmeistarar 1992 eftir sigur á KA í úrslitum eftir framlengingu og þá sigruðu Valsarar viðureign liðanna í bikarnum 2009 eftir framlengingu. Það mátti því búast við að leikurinn yrði lengri en 90 mínútur.

    Elfar Árni Aðalsteinsson skoraði fyrsta mark leiksins strax á 6. mínútu úr vítaspyrnu eftir að hann hafði verið felldur í teig Valsmanna. Gestirnir jöfnuðu hinsvegar metin á 22. mínútu þegar Orri Sigurður Ómarsson skoraði eftir klafs í teig KA manna. Ekki voru fleiri mörk skoruð í venjulegum leiktíma en KA menn áttu að fá vítaspyrnu á 48. mínútu þegar boltinn fór greinilega í hönd Ian Williamson í vörn Vals en ekkert var dæmt.

    Fátt markvert gerðist í framlengingunni og því þurfti að grípa til vítaspyrnukeppni. Eftir mikinn hasar þá skipti klúður Josip Serdarusic sköpum og Valsmenn fögnuðu sigri og fara áfram í úrslitaleikinn.

    Myndefni fengið úr útsendingu Stöð 2 Sport

Thumbnail
  • Glæsimark Andra Fannars gegn Þór 2009
  • Akureyrarliðin KA og Þór hafa oft barist á knattspyrnuvellinum og eru leikir liðanna alltaf líflegir og fjörugir. Andri Fannar Stefánsson skoraði stórglæsilegt mark fyrir KA í 2-0 sigri KA á Þór á Akureyrarvelli þann 15. maí 2009 og er markið líklega það glæsilegasta sem sést hefur í rimmu liðanna.

Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband