Fréttir

Síðustu æfingar í handboltanum

Í dag er síðasti dagur æfinga hjá yngri flokkum í handbolta hjá KA á þessu tímabili, nema hjá 4. flokki karla og kvenna sem æfa fyrir Partille ferð í sumar. Við þökkum iðkendum fyrir veturinn og vonumst til að sjá ykkur öll hress og kát á æfingum næsta haust. Þjálfarar og Unglingaráð handknattleiksdeildar KA

Guðlaugur Arnarsson hættir sem þjálfari KA/Þór

Guðlaugur Arnarsson hefur ákveðið að hætta þjálfun meistaraflokks KA/Þórs í handbolta. Þetta kemur sér illa fyrir liðið sem er að undirbúa sig fyrir næsta keppnistímabil. Nú er hafin leit að nýjum þjálfara og eru allar ábendingar vel þegnar í því sambandi. Guðlaugi eru þökkuð góð störf í vetur fyrir kvennaliðið.

Lokahóf yngri flokka handknattleiksdeildar - myndir

Lokahóf yngri flokka handknattleiksdeildar KA var haldið á miðvikudagskvöldið 16. maí s.l. í KA heimilinu. Fjöldi manns mætti og var mikið fjör, farið var yfir starf vetrarins en um 250 iðkendur æfðu handbolta í vetur og héldum við 2 stór mót hér fyrir norðan í samvinnu við Þór.

Lokahóf yngri flokka handknattleiksdeildar

Lokahóf yngri flokka handknattleiksdeildar KA verður haldið miðvikudaginn 16. maí klukkan 18:00 Í KA heimilinu. Allir iðkendur eru hvattir til að mæta með fjölskylduna og eiga skemmtilega stund saman.

Hellingur af myndum frá frægðarför 2. flokks Akureyrar

Eins og kunnugt er þá varð 2. flokkur Akureyrar Handboltafélags Íslandsmeistari um helgina. Eftir að hafa unnið til silfurverðlauna ár eftir ár eftir ár tókst loks að brjóta ísinn og landa stóra titlinum. Þórir Tryggvason fór með strákunum suður og sendi okkur glæsilegan myndapakka frá ferðalaginu.

2. flokkur Akureyrar Íslandsmeistari 2012

Strákarnir í 2. flokki settu nú rétt í þessu glæsilegan lokapunkt á tímabilið þegar þeir urðu fyrstu Íslandsmeistarar Akureyrar Handboltafélags eftir framlengdan úrslitaleik gegn Fram. Sjá umfjöllun um leikinn.

Úrslitaleikur 2. flokks í dag klukkan 15:30 - bein útsending

Í dag, laugardag er komið að stóra deginum hjá strákunum í 2. flokki þegar þeir mæta Fram í úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn. Leikurinn hefst klukkan 15:30 og verður leikið á heimavelli Hauka, Schenker-höllinni. Það er ástæða til að hvetja stuðningsmenn Akureyrar á höfuðborgarsvæðinu til að fjölmenna í Hafnarfjörðinn í dag og standa með strákunum í baráttunni.