27.12.2012
Sú skemmtilega hefð hefur verið nokkur undanfarin ár að ýmsir kappar sem gerðu garðinn frægan með yngri flokkum KA hittast í KA heimilinu
á annan í jólum og rifja upp forna takta. Það er Davíð Már Kristinsson sem hefur haft forgöngu um þennan hitting og að
sjálfsögðu var mikil gleði ríkjandi þegar strákarnir komu saman í ár.
20.12.2012
Jólaæfing hjá yngstu iðkendunum í handbolta var haldin um síðustu helgi . þar mættu um 100 krakkar með foreldrum og systkinum og
tóku vel á því bæði í leik og söng. Þjálfarar voru með skemmtilega leiki fyrir börnin og óvæntir
rauðklæddir gestir mættu á staðinn með gott í poka og tóku lagið með krökkunum. Jólasveinarnir höfðu orð
á því að krakkarnir hefðu verið einstaklega skemmtileg, stillt og prúð.
10.12.2012
Árleg jólaæfing 8. og 7. flokks (strákar og stelpur) verður laugardaginn 15. desember kl 10-11. Þar verður farið í skemmtilega leiki og
óvæntir gestir munu kíkja í heimsókn. Foreldrar og systkini eru velkomin að koma og horfa á eða taka þátt í æfingunni.
Yngstu flokkarnir munu svo fara í jólafrí í samræmi við skólana í bænum.
06.12.2012
Bjarni Fritzson,
annar þjálfari Akureyrar Handboltafélags var í viðtali á sjónvarpsstöðinni N4 í gær þar sem hann ræddi við Hildi
Jönu um leikinn, Akureyrarliðið og ekki síst segir hann frá gerð kennsludisksins Frá byrjanda til landsliðsmanns. Þá eru sýnd
myndbrot af diskinum.
06.12.2012
Þá
er komið að síðasta tækifærinu til að sjá Akureyrarliðið á heimavelli á þessu ári. Mótherjarnir eru engir aðrir
en Íslandsmeistarar HK og það er til mikils að vinna í dag. Til viðbótar hve baráttan er hörð í deildinni þá er einnig
í húfi þátttökuréttur í deildarbikarkeppni efstu fjögurra liða N1 deildarinnar að aflokinni 12. umferð.
Athugið að leikurinn í dag hefst klukkan 19:15, fimmtán mínútum síðar en venjulega.
04.12.2012
Nú er að koma út fyrsti kennsludiskurinn í handknattleik sem gefinn er út á Íslandi. Diskurinn nefnist Frá byrjanda til
landsliðsmanns og það eru þeir Bjarni Fritzson og Sturla Ásgeirsson sem hafa veg og vanda að gerð disksins en þeir hafa einnig fengið marga af okkar bestu
handknattleiksmönnum í lið með sér á diskinum. Diskurinn fer í almenna sölu þann 7. desember og er að sjálfsögðu skyldueign og
draumajólagjöf allra handknattleiksáhugamanna.
27.11.2012
Morgunblaðið birtir
í dag val sitt á úrvalsliði 9. umferðar N1-deildar karla. Líkt og í 8. umferð á Akureyri tvo fulltrúa í liðinu en það
eru einmitt sömu leikmenn, þeir Bergvin Þór Gíslason sem vinstri skytta og Guðlaugur Arnarsson sem besti varnarmaðurinn og
jafnframt er hann valinn leikmaður umferðarinnar.
26.11.2012
Stelpurnar í 5. flokki kvenna skelltu sér suður á föstudagsmorgunn. Fóru að vísu heldur fáliðaðar enda
nokkrar sem höfðu forfallast síðustu dagana fyrir ferð en hugtakið fámennt en góðmennt átti svo sannarlega við að þessu
sinni.
26.11.2012
4. flokkur kvenna er kominn áfram í bikarnum efti röruggan sigur á Aftureldingu 3. Stelpurnar spiluðu frábærlega í
leiknum og steig engin þeirra feilspor, nema jú kannski Berghildur Hermannsdóttir sem missteig sig illa snemma leiks. Vonandi að þau meiðsli reynist ekki of
alvarleg.