27.09.2012
Í sumar hlaut Unglingaráð handknattleiksdeildar styrk til kaupa á keppnistreyjum fyrir stúlkurnar í yngri flokkum KA/Þór frá
Norðurorku.
Þetta var kærkomin viðbót við það góða starf sem hefur verið unnið í því að styrkja kvennahandboltann frá
því að ákveðið var að sameina hann undir merkjum KA/Þór og framvegis munu stelpurnar keppa í sínum eigin búningum.
26.09.2012
Stelpurnar í 4. flokki KA/Þór léku um síðustu helgi þrjá leiki í forkeppni. Fyrsti leikurinn var gegn Aftureldingu sem sigraði
15-19. Næsti leikur KA/Þór var gegn Haukum og þar unnu KA/Þór stelpurnar tveggja marka sigur 13-11. Í lokaleiknum gerðu KA/Þór og
Stjarnan jafntefli 13-13.
KA/Þór stelpurnar léku í nýjum búningum eins og sjá má á meðfylgjandi myndum Þóris Tryggvasonar en þær
eru frá Stjörnuleiknum.
25.09.2012
Þjálfarar 5. flokks kvenna í KA/Þór hafa sett upp sérstaka læsta bloggsíðu fyrir flokkinn. Þar verður komið á
framfæri hverskonar upplýsingum til leikmanna og forráðamanna. Á æfingu í dag fá stelpurnar afhent aðgangsorð til að komast
á bloggsíðuna.
Hægt er að komast á bloggsíðuna með því að fara á heimasíðu 5. flokks,
sjá hér.
24.09.2012
Það
má gera ráð fyrir hörkuleik á mánudagskvöldið þegar Akureyri tekur á móti FH í fyrsta leik N1 deildar karla þetta
tímabilið. Undanfarin ár hafa þessi lið trúlega mæst oftast af öllum liðum deildarinnar og undantekningarlítið hafa leikir þeirra
verið jafnir og spennandi.
Nokkrar breytingar hafa orðið á leikmannahópi beggja liða frá því í fyrra. Hjá Akureyri eru þær helstar að Sveinbjörn
Pétursson, markvörður er farinn til EHV Aue í Þýskalandi, og Hörður Fannar Sigþórsson leikur nú með Kyndil í Færeyjum
auk þess sem Guðlaugur Arnarsson lagði skóna á hilluna. Aðrir leikmenn sem fóru eru Daníel Örn Einarsson sem fór til HK, Jón
Heiðar Sigurðsson til Gróttu, Halldór Tryggvason til FH og Hlynur Elmar Matthíasson til Víkings.
20.09.2012
KA strákarnir í 4. flokki spila í milliriðli um fyrstu deildarsæti á laugardaginn. Þórsarar sjá um þá keppni og fer
hún fram í Íþróttahúsi Síðuskóla sem hér segir:
Dagsetning
Tími
Lið
Laugardagur 22.9.2012
12:50
Þór - KA
Laugardagur 22.9.2012
13:50
Stjarnan - Þór
Laugardagur 22.9.2012
14:50
KA - Stjarnan
20.09.2012
Forkeppni 4. flokks kvenna fer fram í KA heimilinu á laugardag og sunnudag. Þar verða okkar stelpur í KA/Þór í baráttunni um
að spila í fyrstu deildinni í vetur.
Leikirnir verða sem hér segir:
14.09.2012
Forkeppni 4. flokks karla eldra ár verður haldin í KA heimilinu laugardaginn 15. september. KA strákarnir leika gegn HK og ÍR en leikirnir eru sem hér
segir:
Kl. 13:30 HK-ÍR
Kl. 14:45 KA-HK
Kl. 16:00 ÍR-KA
Hvetjum alla til að mæta og styðja sitt lið.
13.09.2012
Handknattleiksdeild KA hefur ákveðið að draga lið KA/Þór úr efstu deild í kvennahandbolta og senda liðið í 2.deild/Utandeild
í staðinn.
Ástæðan er sú að liðið hefur misst 5 reynslumestu leikmenn sína frá síðasta keppnistímabili, þar af tvo í
þessari viku. Því telur stjórn Handkattleiksdeildar KA að yngri leikmönnum sé enginn greiði gerður með því að senda
þær í efstu deild, en aðeins 2-3 stúlkur í hópnum hafa reynslu af því að leika þar.
Stefnan er sett á markvissar æfingar í vetur og keppni með það að markmiði að eiga aftur lið á meðal þeirra bestu á
næsta hausti.
Stjórn Handknattleiksdeildar KA
09.09.2012
Í gær lauk æfingamótinu hjá meistarafloki kvenna. KA/Þór-1 vann alla sína leiki örugglega og sigraði því mótið
með fullt hús eða 6 stig. Fylkir hafnaði í öðru sæti með fjögur stig. Afturelding í þriðja sæti með tvö
stig en KA/Þór-2 í neðsta sæti án stiga. Margar ungar og efnilegar stúlkur spiluðu með liðum KA/Þór og stóðu sig
afar vel.
Úrslit leikjanna urðu sem hér segir:
06.09.2012
Nú um helgina
verður fjögurra liða æfingamót í KA heimilinu fyrir meistaraflokk kvenna í handknattleik. KA/Þór heldur mótið í samstarfi
við Norðlenska og að sjálfsögðu kallast mótið Opna Norðlenska.
Frá KA/Þór verða tvö lið í mótinu en auk þeirra mæta lið frá Fylki og Aftureldingu. Mótið hefst með tveim
leikjum á föstudag og síðan verða fjórir leikir á laugardaginn. Leikjaniðurröðun og tímasetningar eru sem hér segir:
Föstudagur 7. sept. kl. 19:00 KA/Þór1 - Afturelding
Föstudagur 7. sept. kl. 20:15 KA/Þór2 - Fylkir