09.09.2012
Í gær lauk æfingamótinu hjá meistarafloki kvenna. KA/Þór-1 vann alla sína leiki örugglega og sigraði því mótið
með fullt hús eða 6 stig. Fylkir hafnaði í öðru sæti með fjögur stig. Afturelding í þriðja sæti með tvö
stig en KA/Þór-2 í neðsta sæti án stiga. Margar ungar og efnilegar stúlkur spiluðu með liðum KA/Þór og stóðu sig
afar vel.
Úrslit leikjanna urðu sem hér segir:
06.09.2012
Nú um helgina
verður fjögurra liða æfingamót í KA heimilinu fyrir meistaraflokk kvenna í handknattleik. KA/Þór heldur mótið í samstarfi
við Norðlenska og að sjálfsögðu kallast mótið Opna Norðlenska.
Frá KA/Þór verða tvö lið í mótinu en auk þeirra mæta lið frá Fylki og Aftureldingu. Mótið hefst með tveim
leikjum á föstudag og síðan verða fjórir leikir á laugardaginn. Leikjaniðurröðun og tímasetningar eru sem hér segir:
Föstudagur 7. sept. kl. 19:00 KA/Þór1 - Afturelding
Föstudagur 7. sept. kl. 20:15 KA/Þór2 - Fylkir
30.08.2012
Nú er búið að setja saman æfingatöflu handboltans hjá öllum flokkum. Æfingar byrja samkvæmt töflunni mánudaginn 3. september.
Sjá töfluna hér að neðan, auk þess sem nánari upplýsingar eru við hvern aldursflokk undir liðnum Yngri
flokkar.
22.08.2012
Nú fer handboltinn að byrja aftur eftir gott sumarfrí.
Í 3. og 4. flokki karla og kvenna eru æfingar hafnar og æfinar hjá 5.-6.-7. og 8. flokki byrja á næstu dögum. Nánari tímasetningar
verða auglýstar á heimasíðunni um leið og æfingataflan verður tilbúin, en verið er að leggja lokahönd á töfluna.
Þjálfarar vetrarins verða sem hér segir:
13.07.2012
Jóhannes Bjarnason hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs KA/Þórs í handbolta næsta vetur. Jóhannes er öllum
hnútum kunnugur hjá KA og hefur þjálfað alla flokka félagsins í gegnum tíðina og náð frábærum árangri.
10.07.2012
Eftir rigningardaginn mikla þar sem liðin okkar duttu öll úr leik fór laugardagurinn að mestu leyti í bið. Við áttum ekki flug fyrr en kl.
02:10 aðfaranótt sunnudags. Krakkarnir fengu því að sofa þangað til þau vöknuðu (eins og einn drengurinn orðaði það, meinti
að sofa út). Eftir morgunmat, pökkun og frágang á skólastofunum okkar var frjáls tími. Sumir völdu að fara enn eina ferð í
mollið en aðrir fóru í gönguferð um miðbæinn og reyndu að láta tímann líða.
06.07.2012
5. júlí byrjaði með látum, Bernharð markmaður hjá eldra strákaliðinu sagðist eiga afmæli svo það fóru allir að
óska honum til hamingju ásamt því að afmælissöngur var sunginn.
03.07.2012
Í dag var fyrsti keppnisdagur á Partille Cup. Öll liðin okkar spiluðu leiki í dag og gekk mjög vel.
01.07.2012
Fyrsti dagur i Gautaborg.