Þá er komið að því að N1 mótið hefjist en fyrstu leikir mótsins verða í dag (miðvikudag) klukkan 14:00. Þá verður leikið allt fram til klukkan 21:00 í kvöld. Bendum á að fylgjast vel með heimasíðu mótsins sem er: http://n1.ka.is
Við viljum benda á að í keppni A-liða þurfti lið Fjölnis 2 að draga sig úr keppni og kemur inn í þeirra stað Þór Gestir.
SportTV sýnir frá mótinu og er fyrsta plan þeirra með leiki í dag svona útlítandi (við bendum á að skoða SportTV.is bæði til að horfa á útsendinguna og fylgjast með ef breytingar verða á þeim leikjum sem þeir hyggjast sýna). Þá bendum við á að hægt er að koma til SportTV manna á svæðinu með USB kubb og fá afrit af þeim leikjum sem þeir sýna. Hver leikur kostar 500 krónur.
kl. 14:00 | Breiðablik 1 - KR 1 | Völlur 1 |
kl. 14:35 | Fjölnir 7 - Þróttur V 1 | Völlur 1 |
kl. 15:10 | Stjarnan 10 - Álftanes 2 | Völlur 2 |
kl. 15:45 | KA 9 - KR 8 | Völlur 2 |
kl. 16:20 | KA 2 - ÍBV 2 | Völlur 7 |
kl. 16:55 | Sindri 1 - Grótta 2 | Völlur 7 |
kl. 17:30 | Skallagrímur 1 - ÍR 2 | Völlur 8 |
kl. 18:05 | Valur 1 - Grótta 1 | Völlur 8 |
kl. 18:40 | Sindri 2 - Breiðablik 11 | Völlur 9 |
kl. 19:50 | Fylkir 7 - ÍA 6 | Völlur 9 |
kl. 20:25 |
Annar þessara leikja verður sýndur: |
Völlur 2 Völlur 7 |
Vallarplan N1 mótsins
Á N1 mótinu eru 12 vellir, merkingarnar á völlunum verða aðeins breytilegar milli daga til að passa uppá að allir fái að spila á bæði gervigrasi og alvöru grasi.
Leikjaskipulag N1 mótsins
- Hérna má skoða leikjaniðurröðun mótsins á netinu -
- Hérna má sækja leikjaniðurröðun mótsins á excel skjali -
Hér má svo nálgast leikjaskipulag hvers félags á mótinu