Skráning er í fullum gangi fyrir íþrótta- og leikjaskóla félagsins fyrir börn á aldrinum 6-12 ára.
Leikjaskólinn hefur verið starfræktur í fjölda mörg ár og alltaf verið vel liðinn af foreldrum og börnum. Nú er hægt að skrá krakka í skólann með því að sækja þar til gert blað hér fyrir neðan, fylla það út og skila uppí KA-Heimili. Einnig er hægt að mæta að morgni 11. júní og fylla út blaðið en að sækja það hér á vefnum, fylla út og skila þvi í KA-heimilið flýtir fyrir.
Hver dagur hefst 8:00 (húsið opnar 7:45) og er búið 12:15 - krakkar í fótbolta kl. 13:00 geta borðað nestið sitt og farið á æfingar kl. 13:00
Um er að ræða 4 tímabil og kostar hvert þeirra 6.000 kr en hvert tímabil er 2 vikur.
Nánari upplýsingar eru á umsóknarblaðinu sem hægt er að nálgast hér að neðan eða hægt er að hringja í KA-Heimilið í síma 462-3482.