Fréttir

3. flokkur karla með tvo leiki um helgina

3. flokkur karla leikur síðustu tvo leiki sína á þessu ári nú um helgina. Strákarnir mæta ÍR í tveimur leikjum, sá fyrri fer fram á laugardaginn kl. 16:00 og er það leikur í 16-liða úrslitum bikarsins. Á sunnudag mætast svo þessi sömu lið aftur en nú í Íslandsmótinu og hefst leikurinn kl. 14:00. Viljum við hvetja sem flesta til að koma í KA heimilið um helgina og styðja liðin okkar til sigurs.

4. flokkur: 3 leikir í KA-Heimilinu um helgina (breyting)

Um helgina leika öll lið 4. flokks karla í handbolta heimaleiki á Íslandsmótinu. Þetta eru seinustu leikir liðanna á þessu ári og hvetjum við fólk eindregið til að mæta og horfa á fyrirtaks handbolta. Dagskráin: Laugardagur: 15:00: KA - Fram (A-lið) Sunnudagur: 10:00: KA - Fram (B-lið) 11:00: KA2 - ÍR (B-lið)

Fyrsti heimaleikur 3. flokks kvenna á föstudaginn

KA/Þór leikur sinn fyrsta heimaleik á tímabilinu í 3. fl. kvenna á föstudaginn kl. 17:00 í KA heimilinu.  Allir eru hvattir til að mæta og hvetja stelpurnar. Þetta verður væntanlega hörkuleikur, í liði KA/Þór eru nokkrar stúlkur sem hafa verið valdar til æfinga með unglingalandsliðum Íslands en í liði Fram eru m.a. tvær stúlkur sem hafa verið viðloðandi A-landslið kvenna.

5 handboltastúlkur frá KA á landsliðsæfingum

Um síðustu helgi fóru 5 stúlkur frá KA á landsliðsæfingar í Reykjavík.  Þar var æft 3-4 sinnum með tveimur landsliðum. Kolbrún Gígja Einarsdóttir og Sunnefa Níelsdóttir æfðu með landsliði U-17 ára og Arna Valgerður Erlingsdóttir, Emma Sardarsdóttir og Unnur Ómarsdóttir æfðu með landsliði U-19 ára.  Það er frábært að svo stór hópur eigi erindi á þessar æfingar og sýnir vel gróskuna í kvennaboltanum.

5. flokkur kvenna - sigur í öllum leikjum helgarinnar

Nú um liðna helgi tók 5. flokkur kvenna þátt í sínu fyrsta móti vetur.  Haldið var sem leið lá til Hafnarfjarðar þar sem keppt var á Hafnarfjarðarmóti Hauka og Actavis. Leikstaður KA-stelpna var Ásvellir og gist var í næsta nágrenni í Hvaleyrarskóla. Þetta var annað mótið á Íslandsmótinu en þjálfarar höfðu áður tekið þá ákvörðun að taka ekki þátt í fyrsta móti vetrarins sem fram fór í Vestmannaeyjum um miðjan október.