Fréttir

Handboltastelpur úr KA/Þór í landsliðsúrtaki

Þrjár stelpur úr KA/Þór hafa verið valdar í landsliðsúrtak í U-15 ára landsliðið, það eru þær Arna Kristín Einarsdóttir, Birta Fönn Sveinsdóttir og Hulda Bryndís Tryggvadóttir. Liðið æfir í Mýrinni í Garðabæ dagana 18.-20. apríl undir stjórn Díönnu Guðjónsdóttur og Unnar Sigmarsdóttur.

Akureyri: Heimaleikur og bikarafhending á fimmtudag kl. 19:30

Það verður heldur betur fjör í Íþróttahöllinni á fimmtudaginn þegar Akureyri Handboltafélag tekur á móti Aftureldingu úr Mosfellsbæ í næstsíðustu umferð N1 deildarinnar. Leikurinn hefst klukkan 19:30 sem er nokkru síðar en vanalega tíðkast. Ástæðan er sú að í reglum HSÍ er kveðið á um að allir leikir í tveim síðustu umferðum deildarinnar skuli fara fram samtímis. Í leikslok á fimmtudaginn verður síðan stór stund í sögu handboltans hér á Akureyri en þá verður liðinu afhentur bikarinn sem tilheyrir Deildarmeistaratitlinum. Við treystum því að hinir frábæru stuðningsmenn fjölmenni á leikinn og taki þátt í bikarafhendingunni enda eiga stuðningsmenn liðsins drjúgan þátt í titlinum.

Aðalfundur Handknattleiksdeildar og ársskýrsla

Aðalfundur Handknattleiksdeildar KA var haldinn á dögunum og fór hann að venju vel fram.  Ársreikningar deildarinnar voru samþykktir en bæði unglingaráð og kvennaráð voru reknar réttu megin við núllið. Ný stjórn tók til starfa og er hún að nokkrum hluta skipuð sömu einstaklingum og áður.  Hér á eftir er ársskýrsla ráðanna tveggja.

Kolbrún Gígja í landsliðshópnum sem keppir í Serbíu

Guðríður Guðjónsdóttir og Ómar Örn Jónsson, þjálfarar U19 ára landsliðs kvenna í handknattleik, hafa tilkynnt 16 manna landsliðshópinn sem heldur til Serbíu og tekur þátt í undankeppni Evrópumótsins dagana 22.-25. apríl. Meðal þessara sextán leikmanna er Kolbrún Gígja Einarsdóttir leikmaður KA/Þórs.

Akureyri deildarmeistarar eftir sigur á HK

Akureyri tryggði sér deildarmeistaratitilinn í kvöld með þriggja marka sigri á HK 29-32. Eftir ótrúlegan fyrri hálfleik þar sem hálfleiksstaðan var 11-21 slökuðu menn óheyrilega mikið á og hleyptu HK inn í leikinn aftur en HK náði að minnka muninn niður í eitt mark 27-28 áður en meistararnir spýttu í aftur og tryggðu sigurinn.

Leikur dagsins: HK og Akureyri í beinni á SportTV.is klukkan 18:30

Akureyrarliðið heldur í Kópavoginn í dag til að berjast við HK pilta. Þetta verður fjórða viðureign liðanna í vetur og þar af sú þriðja í Kópavogi. Akureyri vann fyrsta leik liðanna afar sannfærandi 29-41 í fyrstu umferð N1 deildarinnar.

4. fl. kvenna Deildarmeistarar

4. flokkur kvenna í handbolta varð á laugardaginn deildarmeistarar í 2. deild.   Þessi frábæri  árangur veitir liðinu  rétt til þátttöku í úrslitakeppninni sem fer fram í apríl.   Við óskum stelpunum og þjálfurunum Stefáni Guðnasyni og Halldóri Tryggvasyni  innilega til hamingju með titilinn.

Grátlegt jafntefli hjá 3. flokki kvenna gegn Stjörnunni.

Stelpurnar í 3. flokki kvenna spiluðu gegn Stjörnunni í KA heimilinu í dag.  Stjarnan hefur verið að bæta sig jafnt og þétt í síðustu umferðum á meðan KA/Þór stelpur hafa rokkað svolítið í spilamennsku. Ljóst var að leikurinn var gríðarlega mikilvægur fyrir heimastúlkur enda eru þær í harðri baráttu um 5. sætið í deildinni við FH og Fylki. 

Góð ferð suður hjá 4. flokki kvenna, A liðið deildarmeistari 2. deildar!

A liðið spilaði um helgina algjöra úrslitaleiki við ÍBV um deildarmeistaratitilinn í 2. deild. Bæði KA/Þór og ÍBV höfðu haft mikla yfirburði í 2. deildinni í vetur. Þar fyrir utan hafði ÍBV komist alla leið í bikarúrslit þar sem þær töpuðu gegn Selfoss en KA/Þór hafði dottið út gegn Fylki í 8 liða úrslitum í framlengdum leik. Fylkir og Selfoss verma tvö efstu sæti 1. deildar nú þegar líða fer að lokum Íslandsmótsins. 

Heimaleikur gegn stórveldi Hauka á morgun fimmtudag

Á fimmtudaginn verður einn af stóru leikjum N1 deildarinnar þegar stórveldið Haukar úr Hafnarfirði mæta til leiks í Íþróttahöllinni. Í gegnum tíðina hafa Haukar verið einn erfiðasti mótherji Akureyrarliðsins og þá sérstaklega hér á heimavelli. Þegar liðin mættust í Íþróttahöllinni þann 22. október síðastliðinn tókst Akureyri reyndar í fyrsta sinn í sögunni að leggja Haukana að velli og þar með er búið að sýna fram á að slíkt er vel hægt.