Fréttir

Dagur Árni snýr aftur heim!

Handknattleiksdeild KA barst í dag gríðarlegur liðsstyrkur þegar Dagur Árni Heimisson skrifaði undir tveggja ára samning við félagið. Dag Árna ættu allir KA menn að þekkja vel til en hann er einn efnilegasti leikmaður landsins og verður gríðarlega gaman að sjá hann aftur í gulu og bláu treyjunni

Bruno Bernat skrifar undir nýjan tveggja ára samning

Bruno Bernat hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við handknattleiksdeild KA og leikur því áfram með sínu uppeldisfélagi næstu árin. Bruno sem er 24 ára hefur heldur betur staðið fyrir sínu í marki KA liðsins undanfarin ár og nú er ljóst að áframhald verður á því

Arnór Ísak framlengir um tvö ár

Arnór Ísak Haddsson skrifaði í dag undir nýjan tveggja ára samning við handknattleiksdeild KA og er nú samningsbundinn út tímabilið 2027-2028. Eru þetta afar jákvæðar fréttir en Arnór sem er 23 ára gamall leikstjórnandi er uppalinn hjá KA og má með sanni segja að hann lifi fyrir KA