Fréttir

Níu leikmenn frá KA í U17 og U19

Þjálfarar U19 landsliðanna í blaki, þeir Filip Szewczyk og Emil Gunnarsson, hafa valið leikmenn fyrir Norðurlandamót U19 sem fram fer í Ikast í Danmörku um miðjan október. Átta leikmenn frá Blakdeild KA eru í hópunum, 7 drengir og 1 stúlka. Þessir leikmenn eru mjög ungir og eiga allir drengirnir einnig sæti í U17 landsliðinu. Þessi fjöldi sýnir vel hversu góðum árangri þessir ungu leikmenn hafa náð og er mikil viðurkenning fyrir blakdeildina og Filip sem hefur verið þjálfari hjá KA undanfarin ár. Þeir leikmenn sem valdir voru eru Benedikt Rúnar Valtýsson, Gunnar Pálmi Hannesson, Ævarr Freyr Birgisson, Valþór Ingi Karlsson, Sævar Karl Randversson, Sigurjón Karl Viðarsson, Vigfús Jónbergsson og Ásta Lilja Harðardóttir.

Forvalshópar U17 og U19 í blaki

Framundan eru Norðurlandamót U17 og U19 í blaki og hafa landsliðsþjálfararnir valið í æfingahópa. Blakdeild KA á þar marga fulltrúa eins og oft áður. Í æfingahópi U17 karla eru Benedikt Rúnar Valtýsson, Gunnar Pálmi Hannesson, Sigurjón Karl Viðarsson, Sævar Karl Randversson, Valþór Ingi Karlsson, Vigfús Jónbergsson og Ævarr Freyr Birgisson. Þjálfari er Natalia Ravva. Í æfingahópi U17 kvenna eru þær Arnrún Eik Guðmundsdóttir og Sóley Ásta Sigvaldadóttir. Þjálfari er Miglena Apostolova. Sömu drengir eru í æfingahópi U19 en þjálfari þeirra er Filip Sczewzyk sem er einnig þjálfari karlaliðs KA. Þær sem voru valdar til æfinga í U19 kvenna voru þær Alda Ólína Arnarsdóttir, Ásta Lilja Harðardóttir, Hafrún Hálfdánardóttir og Hólmfríður Ásbjarnardóttir. Það er hins vegar bara Ásta sem gefur kost á sér þar sem hinar eru fjarri góðu gamni. Þjálfari þeirra er Emil Gunnarsson. Við bíðum spennt eftir endanlegri liðsskipan en U19 liðin halda til Ikast í Danmörku 14. október og U17 liðin til Kettering á Englandi 31. október. 

KA tryggði sér úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn í blaki - myndir

Það var allt undir í kvöld þegar KA tók á móti HK í fjórða leik liðanna í úrslitarimmunni um Íslandsmeistaratitil karla í blaki. Bikarinn var í húsinu enda hefði HK tryggt sér meistaratitilinn með sigri í leiknum þar sem þeir voru 2-1 yfir í einvíginu.

Aðalfundur Blakdeildar KA

Aðalfundur  Blakdeildar KA verður haldinn í fundasal KA-heimilisins þriðjudaginn 19. mars n.k. kl. 20:00. Dagskrá fundarins: 1.   Skýrsla formanns 2.   Reikningar deildarinnar 3.   Kosning nýrrar stjórnar 4.   Önnur mál Hvetjum alla blakspilara og aðra velunnara deildarinnar til að mæta.   Stjórnin

Mikasadeildin: KA - Stjarnan

Stjarnan heimsótti KA í gær og var bæði leikið í karla- og kvennaflokki í Mikasadeildinni. KA-menn sigruðu í karlaflokki 3-1 í miklum baráttuleik. KA-menn voru seinir í gang í fyrstu hrinunni og töpuðu henni naumlega 26-28. Þeir tóku svo næstu þrjár 25-21, 25-22 og 26-24. 

Leikur KA og Fylkis í blaki kvenna

Leikur KA og Fylkis í blaki kvenna fór fram í KA-heimilinu á Akureyri á laugardaginn. Leikurinn var jafn og spennandi.Leikur beggja liða var þó nokkuð kaflaskiptur. Fylkir vann fyrstu hrinuna 25-21 eftir að KA hafði verið yfir 12-7. KA vann aðra og þriðju hrinu 25-18 og 25-20. Í fjórðu hrinu gerðu KA stúlkur mikið af mistökum og vann Fylkir hrinuna auðveldlega 25-15. KA tók sig á í fimmtu hrinu og sigraði hrinuna örugglega 15-7 og þar með leikinn 3-2.  Það er skemmtilegt frá því að segja að mæðgur áttust við í leiknum. Hugrún Ólafsdóttir leikmaður Fylkis er mamma Dagnýar Ölmu Jónasdóttur leikmanns KA. Meðfylgjandi er mynd af þeim mæðgum fyrir leikinn.

U19 í blaki

Þjálfarar U19 landsliðanna í blaki hafa nú valið í liðin sem halda til Kristiansand í Noregi í 15. nóvember n.k. til þátttöku í Norðurlandamóti. Tólf stúlkur og tólf drengir eru í liðunum og þar af á Blakdeild KA 9 fulltrúa – 5 drengi og 4 stúlkur. Þjálfarar liðanna eru Filip Szewczyk sem er með drengjaliðið og Emil Gunnarsson sem er með stúlkurnar. Þess má geta að Filip er þjálfari hjá KA.

Íslandsmót í blaki yngri flokka.

KA - UMFA Mikasadeild í blaki

Útslit leikja í Mikasadeildinni í blaki, Akureyri 6. október 2012 Karlar: KA-UMFA Útslit leiks: 3 - 1 Úrslit hrina: 25-22 25-22 10-25 25-20 Stigahæstu leikmenn KA: Piotr Kempisty 30 Benedikt Rúnar Valtýsson 6 Filip Pawel Szewczyk  5 Stigahæstu leikmenn UMFA: Ivo 15 Hlynur 7 Kem Karl 6 Konur: KA-UMFA Útslit leiks: 0 - 3 Úrslit hrina: 14-25 7-25 13-25 Stigahæstu leikmenn KA: Alda Ólína Arnarsdóttir 7 Dagný Alma Jónasdóttir  6 Eva Sigurðardóttir 6 Stigahæstu leikmenn IMFA: Zaharina Filipova  12 Miglena Apostolova  11 Auður Anna Jónsdóttir  9

KA - HK

KA sigraði HK 3-2 í fyrsta leik vetrarins í Mikasa-deildinni í blaki. KA vann fyrstu tvær hrinurnar 25-22 og 25-17 en töpuðu næstu tveimur 19-25 og 17-25 og þurfti því oddahrinu til að ná fram úrslitum. Bæði liðin ætluðu sér sigur í þessum fyrsta leik en eftir mikla baráttu unnu KA menn 15-10. Stigahæstu leikmenn KA voru Piotr Kempisty með 38 stig, Ævarr Freyr Birgisson með 11 stig og Filip Szewczyk og Árni Björnsson með 5 stig hvor. Í liði HK voru stigahæstir þeir Alexander Stefánsson með 17 stig, Brynjar Pétursson með10 stig og Aðalsteinn Eymundsson 8 stig. Í kvennaflokki mættust einnig KA og HK. HK sigraði 3-0 og fóru hrinurnar 25-11, 25-16 og 25-16. Stigahæstu leikmenn KA voru Alda Ólína Arnarsdóttir með 8 stig, Arnrún Eik Guðmundsdóttir með 5 stig og Hafrún Hálfdánardóttir 4 stig. Þess má geta að Arnrún Eik er yngsti leikmaður KA aðeins 13 ára og gríðarlega efnileg. Stigahæstu leikmenn HK voru Fríða Sigurðardóttir með 12 stig, Laufey Sigmundsdóttir og Pálmey Pálmadóttir með 6 stig hvor.