Fréttir

FIM-leikjaskóli 2023 lokið

FIM-leikjaskóli FIMAK sumarið 2023 lauk í dag eftir frábærar 4 vikur sem einkenndust af brosandi glæsilegum 45 skoppandi glöðum krökkum. Alls voru þetta 4 námskeið sem stóðu yfir í viku í senn frá klukkan 08:15-14:00 alla virka daga. Námskeiðin gengu ótrúlega vel fyrir sig þökk sé góðu skipulagi Alexöndru sem var með yfirumsjón yfir leikjaskólanum og frábærum stelpum frá vinnuskóla Akureyrarbæjar sem stóðu sig frábærlega. Krakkarnir sem sóttu námskeiðin hjá okkur voru alveg hreint frábærir og til fyrirmyndar. Við hjá FIMAK þökkum öll kærlega fyrir og vonumst til að sjá alla þessa flottu og hressu krakka á æfingu hjá okkur í vetur.

Ný Stjórn FIMAK

Ný stjórn FIMAK hefur tekið til starfa.

Flügger styrkir félagið þitt (FIMAK).

Flügger Andelen

Frábær vetur hjá FIMAK krökkum - Framtíðin er þeirra!

Norðurlandamótið í áhaldafimleikum fór fram í Gerplu, Versölum í helgina 2. - 3. júlí. Sólon Sverrisson var flottur fulltrúi Íslands í keppni Úrvalsliða drengja. Fimak er afar stolt af þessum flotta unga íþróttamanni .

Glæsileg vorsýning að baki

Glæsileg vorsýning að baki. Enn og aftur vill Stjórn FIMAK þakka öllum þjálfurum og sjálfboðaliðum sem lögðu fram vinnu sína. Stjórnin vill þakka Kjarnafæði/Norðlenska fyrir pylsurnar sem okkur voru gefnar. Greifanum fyrir lán á grillum/gasi. Það er venja fimleikafélagsins að veita viðurkenningar í lok vetrar. Þjálfarar sjá um það val. Viðurkenningar eru veittar fyrir ástundun og virkni annars vegar og mestu framfarir hins vegar.

Vorsýning 2023

Lokahnykkur annar er vorsýningin okkar sem haldin verður laugardaginn 3.júní. Aðgangseyri er 2500kr fyrir 16 ára og eldri. Grillaðar verða pylsur í boði Kjarnafæði/Norðlenska eftir hverja sýningu.

Framhaldsaðalfundur FIMAK 31.maí kl.20:00

Þar sem ekki náðist að manna stjórn FIMAK boðar stjórn FIMAK til framhaldsaðalfundar. Framhaldsaðalfundur Fimleikafélags Akureyrar fer fram miðvikudaginn 31. maí kl. 20:00 í anddyri FIMAK. Vinsamlegast sendið póst um framboð á skrifstofa@fimak.is Efni fundarins: Kosning stjórnarmanna og 2 varamanna.

GK heldur áfram að styðja við FIMAK

FIMAK og GK hafa gert með sér áframhaldandi styrktarsamning til 3 ára. Allir okkar þjálfarar og iðkendur munu klæðast glæsilegum fatnaði frá þeim. Við erum afar þakklát fyrir áframhaldandi samstarf við GK sem mun skipta okkur í FIMAK miklu máli.

Óskum eftir þjálfurum í hópfimleika

FIMAK óskar eftir því að ráða þjálfara í hópfimleika. Viðkomandi þarf að geta hafið störf í ágúst 2023. Umsóknum ásamt ítarlegri ferilskrá skal senda á skrifstofa@fimak.is. Umsóknarfrestur er til og með 31.maí. Fyrir frekari upplýsingar veitir Alexandra skrifstofustjóri félagsins, hægt að senda tölvupóst á skrifstofa@fimak.is.

Laus staða yfirþjálfara hópfimleika

FIMAK óskar eftir því að ráða í stöðu yfirþjálfara í hópfimleikum. Viðkomandi þarf að geta hafið störf í ágúst 2023. Umsóknum ásamt ítarlegri ferilskrá skal senda á skrifstofa@fimak.is. Umsóknarfrestur er til og með 31.maí. Fyrir frekari upplýsingar veitir Alexandra skrifstofustjóri félagsins, hægt að senda tölvupóst á skrifstofa@fimak.is.