09.05.2023
Í sumar býður FIMAK upp á fim-leikjanámskeið fyrir 6-10 ára krakka (2013-2017).
Námskeiðin verða frá kl. 8:15 - 14:00 alla virka daga og standa námskeiðin yfir í viku í senn og kostar vikann 16.000 kr
Ef skráð er á allar 3 vikurnar fæst 4 vikan frítt.
Námskeiðin samanstanda af fimleikaæfingum og ýmsum leikjum, bæði úti og inni. Krakkarnir þurfa að hafa með sér hollt og gott nesti fyrir morgunkaffi og hádegismat.
Fyrir nánari upplýsingar má senda póst á skrifstofa@fimak.is
Skráning er hafin og fer fram í gegnum skráningarkerfi Sportabler FIMAK | Vefverslun (sportabler.com)
25.04.2023
Aðalfundur Fimleikafélags Akureyrar fer fram þriðjudaginn 16. maí kl. 20:00 í matsal Giljaskóla. Við hvetjum foreldra, forráðamenn, þjálfara og aðra áhugasama sem láta málefni félagsins sig varða til þess að mæta á fundinn. Óskum eftir framboðum í stjórn FIMAK. Vinsamlegast sendið póst um framboð á skrifstofa@fimak.is
Efni fundarins:
1. Fundarsetning og ávarp formanns.
2. Kjör fundarstjóra og fundarritara.
3. Staðfest lögmæti fundarins.
4. Fundargerð síðasta aðalfundar lögð fram
5. Skýrsla aðalstjórnar, framkvæmdarstjóra og nefnda.
6. Reikningar félagsins.
7. Umræður um skýrslur.
8. Reikningar bornir undir atkvæði.
9. Lagabreytingar.
10. Kosning formanns.
11. Kosning stjórnarmanna og 2 varamanna.
12. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga fyrir næsta starfsár
13. Ákvörðun styrktarfélagsgjalda
14. Önnur mál.
Stjórn FIMAK
24.04.2023
Nú á dögunum gerði Fimleikafélag Akureyrar og SBA samstarfssamning sín á milli.
Svona stuðningur er ómetanlegur og nauðsynlegur til að halda uppi öflugu barna- og unglinga starfi. Við hjá FIMAK erum gríðarlega þakklát fyrir stuðninginn frá SBA og þökkum þeim kærlega fyrir stuðninginn.
05.04.2023
Fimleikafélag Akureyrar óskar öllum iðkendum og forráðarmönnum þeirra gleðilega páska.
01.03.2023
Vegna óviðráðanlegra aðstæðna verðum við að fresta áhorfenda viku sem átti að hefjast í dag fram í næstu viku.
Áhorfendavika verður því dagana 6.-11.mars :)
01.02.2023
Í upphafi hvers mánaðar, 1. til og með 7. hvers mánaðar, eru foreldrum, systk. ömmum og öfum velkomið að sitja inn í sal á meðan á æfingu stendur og horfa á . Hinar vikurnar biðjum við ykkur að bíða fram í anddyri hússins ef þið ætlið að bíða eftir börnum ykkar á meðan æfingu stendur. Þetta hefur reynst mjög vel fyrir iðkendur, þjálfara og ekki síst aðstandendur. Ef af einhverjum ástæðum þið komist ekki umrædda viku þá endilega talið við þjálfara hópsins um að fá að vera inni utan þess tíma sem getinn er.
Ef þið eruð með lítið barn með ykkur þegar þið horfið á vinsamlegast passið að það sé EKKI inn á æfingasvæðinu það getur skapað hættu því hraðinn á iðkendur er mikill í hlaupum og slys geta orðið.
03.11.2022
Laugardaginn 5. nóvember fer fram þrepamót í áhaldafimleikum í sal Fimleikafélags Akureyrar við Giljaskóla.
Þrepamótið er fyrir keppendur í 4. og 5. þrepi fimleikastigans en það eru yngstu keppendurnir, frá 9 ára aldri. Um er að ræða einstaklingskeppni í áhaldafimleikum þar sem keppendur reyna að ná tilskildum viðmiðum fyrir sitt þrep. Í áhaldafimleikum kvenna er keppt á fjórum áhöldum, þ.e. gólfæfingum, stökki, tvíslá og jafnvægisslá. Í áhaldafimleikum karla er keppt á sex áhöldum, bogahesti, hringjum, stökki, tvíslá, svifrá og gólfæfingum.
01.11.2022
Í upphafi hvers mánaðar, 1. til og með 7. hvers mánaðar, eru foreldrum, systk. ömmum og öfum velkomið að sitja inn í sal á meðan á æfingu stendur og horfa á . Hinar vikurnar biðjum við ykkur að bíða fram í anddyri hússins ef þið ætlið að bíða eftir börnum ykkar á meðan æfingu stendur. Þetta hefur reynst mjög vel fyrir iðkendur, þjálfara og ekki síst aðstandendur.Ef af einhverjum ástæðum þið komist ekki umrædda viku þá endilega talið við þjálfara hópsins um að fá að vera inni utan þess tíma sem getinn er. Ef þið eruð með lítið barn með ykkur þegar þið horfið á vinsamlegast passið að það sé EKKI inn á æfingasvæðinu það getur skapað hættu því hraðinn á iðkendur er mikill í hlaupum og slys geta orðið.
15.09.2022
Evrópumótið í hópfimleikum 2022 fer fram í Lúxemborg núna þessa dagana og erum við í FIMAK gríðarlega stolt að eiga hlut í þremur keppendum.
Salka Sverrisdóttir keppir með stúlknalandsliðinu sem keppir til úrslita á föstudaginn.
Gísli Már Þórðarson keppir með blönduðu liði unglinga sem keppir einnig til úrslita á föstudaginn.
Jóhann Gunnar Finnsson keppir með karlalandsliðinu og keppa þeir kl 17:15 í dag.
EM var síðast haldið fyrir níu mánuðum síðan og varð Ísland Evrópumeistarar í kvennaflokki. Karlaflokkur Íslands lenti í öðru sæti, stúlknaflokkur í öðru sæti og blandaði hópurinn í þriðja sæti.
29.08.2022
Fimleikafélag Akureyrar fékk viðurkenningu sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ á opnu húsi laugardaginn 27. ágúst síðastliðinn.