08.10.2013
KA/Þór gerði sér lítið fyrir í kvöld og vann frábæran sigur á Haukum, 25-24, í KA-heimilinu. Leikurinn var í
járnum nánast allan tímann en lið KA/Þór var sterkara á lokasprettinum.
07.10.2013
KA/Þór mætir Haukum í KA-heimilinu á morgun, þriðjudag, í KA-heimilinu. Frítt er á völlinn og hefst leikurinn klukkan 18.30.
Síðast þegar stelpurnar spiluðu í KA-heimilinu unnu þær stórsigur á Aftureldingu fyrir framan ríflega 300 áhorfendur.
Það er því um að gera að mæta á völlinn til þess að hvetja stelpurnar, enda um mikilvægan leik að ræða.
KA/Þór tapaði naumlega á laugardaginn fyrir Gróttu en með smá heppni hefði sá leikur unnist.
Við viljum minna á að enn er hægt að kaupa ársmiða og eru þeir seldir á staðnum. Þeir kosta 5000kr stykkið og innifalið
í því er kaffi og kökur í hálfleik.
06.10.2013
Meistaraflokkur KA/Þór hélt suður á Seltjarnarnes á laugardaginn þar sem þær mættu sterku liði Gróttu. Grótta komst
í úrslitaleik bikarkeppninnar í fyrravetur og er spáð 5. sæti í Olís-deildinni í vetur á sama tíma og KA/Þór er
spáð neðsta sætinu.
Leikurinn var í miklu jafnræði til að byrja með, Grótta þó með frumkvæðið. Um miðjan fyrri hálfleikinn komst
KA/Þór yfir með góðum leikkafla. Grótta komst þó aftur yfir og leiddi í hálfleik 13-11.
06.10.2013
Fimmti flokkur drengja hjá KA gerði sér lítið fyrir og bar sigur úr bítum á fyrsta fjölliðamóti flokksins í vetur. A-lið
KA sigraði í fyrstu deild eftir hörkubaráttu við þrjú önnur félög. B-lið félagsins stóð sig einnig mjög vel en
tapaði naumlega úrslitaleik í 3. deild. Það er því ekki amaleg byrjun á vetrinum að vinna 1. umferð Íslandsmóts og eiga
drengirnir töluverða möguleika að verða Íslandsmeistarar þegar upp verður staðið í lok vetrar og ekki er ólíklegt að
B-liðið vinni sig upp um deild.
02.10.2013
Það er komið að öðrum heimaleik Akureyrar Handboltafélags í Olís-deildinni. Að þessu sinni eru það nýliðarnir í
deildinni, Vestmannaeyingar sem mæta til leiks eftir fimm ára fjarveru úr efstu deild.
Leiktíminn og dagurinn er óvenjulegur að þessu sinni og því skal ítrekað að leikurinn hefst klukkan 13:30 eða hálftvö á
laugardaginn.Ástæðan er sú að Eyjamenn þurfa að komast heim áður en flugvöllurinn í Eyjum lokar.
30.09.2013
Nú þegar 2. umferð Olís-deildar kvenna er lokið hafa tveir miðlar, sport.is og handbolti.org valið þá leikmenn sem taldir eru hafa skarað fram
úr í umferðinni. Þessir miðlar eru ótrúlega samhljóma að þessu sinni en eina ósamræmið á milli þeirra er val
á markverði umferðarinnar. KA/Þór á sína fulltrúa í valinu, Martha Hermannsdóttir er hjá báðum aðilum valin besta
vinstri skyttan og Sunna Guðrún Pétursdóttir er markvörður umferðarinnar hjá handbolti.org.
Við óskum þeim báðum svo og öðrum leikmönnum til hamingju með frammistöðuna.
29.09.2013
Það var sögulegur leikur hjá Hömrunum á laugardaginn þegar þeir léku sinn fyrsta leik í 1. deildinni. Sterkt samband er á milli
Hamranna og Akureyrar Handboltafélags enda eru allnokkrir leikmenn úr æfingahópi Akureyrar á láni hjá Hömrunum auk þess sem margir leikmenn
úr 2. flokki Akureyrar spreyta sig með Hömrunum og fá þannig dýrmæta reynslu. Þá voru nokkur gamalkunnug andlit í leikmannahópnum
sem hafa tekið fram skóna og sýndu að þeir kunna ýmislegt fyrir sér.
28.09.2013
Frábær mæting var í KA-heimilið í dag þegar að KA/Þór burstaði Aftureldingu í Olís-deild kvenna. Ríflega 350 manns
sáu stúlkurnar vinna 31-23. Sigurinn var aldrei í hættu en Aftureldingu var spáð 11. sæti deildarinnar en KA/Þór því
tólfta.
27.09.2013
Stúlkurnar í KA/Þór leika gegn Aftureldingu í
Olís-deild kvenna á laugardaginn í KA-heimilinu. Leikurinn hefst klukkan 13.30 en það verður mikið húllumhæ í félagsheimili KA-manna
fyrir leik. Frítt er á völlinn og eru allir hvattir til þess að mæta og styðja stelpurnar.
27.09.2013
Í kjölfar KA-dagsins á laugardag hefst mikil handboltaveisla í KA-heimilinu. Klukkan 13:30 leikur KA/Þór sinn fyrsta heimaleik í Olís-deildinni
þegar liðið tekur á móti Aftureldingu. Þar á eftir er komið að sögulegum leik en klukkan 16:00 leikur hið nýja lið Hamranna sinn
fyrsta leik í 1. deild en mótherjar Hamaranna eru Þróttarar.
Á sama tíma leikur Akureyri Handboltafélag við ÍR en sá leikur fer fram í Reykjavík en verður sýndur beint á RÚV.
Seinna á laugardaginn, eða klukkan 19:15 leikur 3. flokkur KA gegn Selfyssingum og sömu lið mætast síðan aftur á sunnudaginn klukkan 12:15.
Báðir þessir leikir verða í KA heimilinu.