Fréttir

Útileikur gegn ÍR og fjáröflunarátak Akureyrar Handboltafélags

Akureyri byrjaði tímabilið með sannfærandi sigri á Íslandsmeisturum Fram í fyrstu umferð deildarinnar sem var leikin í síðustu viku. Nú á laugardaginn heldur meistaraflokkur liðsins í sinn fyrsta útileik  þegar liðið mætir bikarmeisturum ÍR á heimavelli þeirra í Austurbergi.  Leikurinn verður sýndur beint á RÚV.

Æfingagjöld í handboltanum 2013-2014

Nú liggur fyrir hver verða æfingajöld hjá yngri flokkum KA í vetur. Innheimta gjaldanna er að hefjast eins og kemur fram hér að að neðan svo og upplýsingar um hvað er innifalið og greiðslumöguleikar. Athugið að það er frítt að æfa í september þannig að allir geta komið og prófað.

Svekkjandi tap í fyrsta leik hjá stelpunum

Kvennalið KA/Þór hóf leik í dag í Olís-deild kvenna, á nýjan leik eftir eins árs fjarveru. Þær léku gegn Selfossi á Selfossi og þurftu að lúta í gras, 24-25, eftir spennandi viðureign. Olís-deildin er rétt að fara af stað og er næsti leikur stelpnanna heimaleikur í KA-heimilinu á laugardaginn næsta.

Tímabilið að hefjast hjá KA/Þór

KA/Þór leikur sinn fyrsta leik í Olís-deild kvenna um helgina þegar þær mæta Selfossi á Selfossi. Liðið er að taka þátt í efstu deild á nýjan leik, eftir eins árs fjarveru.

Fyrsti heimaleikur Akureyrar í Höllinni á fimmtudag klukkan 19:00

Loksins er komið að leikdegi í úrvalsdeild hjá meistaraflokki karla. Deildin hefur fengið nýtt nafn, heitir að þessu sinni Olís-deildin. Fyrstu mótherjar Akureyrar eru engir aðrir en Íslandsmeistarar Fram. Leikmenn ætla svo sannarlega að sýna að þeir séu tilbúnir í slaginn og vonast að sjálfsögðu til að fá fulla höll í fyrsta leik. Við minnum á hversu frábær skemmtun það er að koma á alvöru handboltaleik. Líkt og í fyrra verður opið gæsluherbergi fyrir yngstu börnin þar sem þau geta leikið sér í ýmsum boltaleikjum.

Foreldrafundur hjá 5. flokki karla í handboltanum

Boðað er til stutts fundar með foreldrum leikmanna 5. flokks karla karla miðvikudaginn 18. september. Fundað verður í fundarsal KA heimilisins og er áætlað að fundurinn standi frá klukkan 18:30 til klukkan 19:00. Helstu dagskrárliðir eru: Vetrarstarfið Keppnisferðir Kynning á þjálfurum flokksins Fulltrúi unglingaráðs mætir á fundinn og spjallar við foreldra. Eins og áður segir, klukkan 18:30 - 19:00 miðvikudaginn 18. september í fundarsal KA-heimilisins.

Mikilvægir leikir hjá 2. flokki Akureyrar í dag, laugardag

Í dag fer fram forkeppni hjá 2. flokki karla þar sem keppt er um hvaða lið leika í 1. deild í vetur eða verða í 2. deild. Liðunum er skipt í fjóra riðla og eru Akureyri, Valur og ÍR í D-riðli sem leikinn verður hér á Akureyri á laugardaginn. Það verður því fjör í Íþróttahöllinni þar sem þetta þriggja liða mót verður drifið af í einum grænum.

Leikmannakynning Akureyrar í Höllinni á fimmtudaginn

Það er orðin löng hefð fyrir því að hefja handboltavertíðina með kynningarfundi þar sem farið er yfir starfsemi félagsins og ekki síst að kynna leikmannahópinn fyrir stuðningsmönnum. Fimmtudaginn 12. september, klukkan 20:00 er komið að kynningunni og hvetjum við allt áhugafólk um handbolta til að koma í Íþróttahöllina og kynna sér starfsemi og leikmannahóp Akureyrar Handboltafélags í vetur.

Fjórir leikir á Opna Norðlenska í dag

Opna Norðlenska mótið hófst með tveimur leikjum í gær, föstudag. í fyrri leiknum mættust Akureyri og Fram, Akureyri byrjaði betur og náði þriggja marka forystu, 6-3 en þá svaraði Framliðið með fimm mörkum í röð. Fram hélt frumkvæðinu í leiknum nema hvað Akureyri skoraði tvö síðustu mörk fyrri hálfleiks og leiddi 15-14 í hálfleik. Akureyrarliðið tók síðan öll völd í seinni hálfleik, skoraði fimm fyrstu mörkin og hélst sex marka munur lengst af en Fram klóraði í bakkann undir lokin með fjórum síðustu mörkum leiksins sem endaði með tveggja marka sigri Akureyrar 24-22.

Norðlenska handboltaveislan um helgina

Eins og undanfarin ár hefjum við forleik að handboltavertíðinni með æfingamótinu Opna Norðlenska. Að þessu sinni taka fjögur lið þátt í mótinu, þrjú gestalið, Fram, Stjarnan og Valur auk heimamanna. Það verður virkilega forvitnilegt að sjá hvernig nýir leikmenn Akureyrar spjara sig en fimm nýir leikmenn komu til liðs við Akureyri Handboltafélag í sumar: