Engar æfingar næstu vikuna hjá yngri flokkum

Almennt | Fótbolti | Handbolti | Júdó | Blak | Tennis og badminton

Knattspyrnufélag Akureyrar hefur ákveðið í samráði við Akureyrarbæ út frá tilkynningu frá ÍSÍ að KA-Heimilið og íþróttahús Naustaskóla verði lokað næstu vikuna. Því falla niður æfingar hjá yngri flokkum sem og allir útleigutímar á meðan. Staðan verður endurmetin í samráði við yfirvöld á ný mánudaginn 23. mars.

Tilkynning ÍSÍ

Í samskiptum ÍSÍ við landlækni, sóttvarnalækni og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hefur komið
fram að vegna mikilla anna við að koma af stað starfi í leik- og grunnskólum landsins, í samræmi við
þær reglur um nú gilda, hefur ekki náðst að ljúka undirbúningi fyrir þátttöku leik- og grunnskólabarna
í íþróttastarfi. Því má gera ráð fyrir því að röskun verði á íþróttastarfi næstu daga þangað til
íþróttafélög, skólasamfélagið og sveitarfélög hafa komið sér niður á lausnir til að halda úti starfi með
þeim takmörkunum sem munu gilda næstu fjórar vikurnar.
Í samskiptum við ofangreinda aðila hefur komið fram að til að unnt sé að undirbúa þetta verkefni og
útfæra þær takmarkanir sem nú eru í gildi með fullnægjandi hætti væri heppilegt að gera ekki ráð
fyrir því að íþróttastarf fyrir þennan aldurshóp fari af stað fyrr en mánudaginn 23. mars nk. ÍSÍ mælist til að farið verði eftir þessum tilmælum.

Varðandi íþróttaiðkun fullorðinna, þá er litið svo á að hún sé heimil að uppfylltum skilyrðum sem
koma fram í auglýsingu heilbrigðisráðherra um samkomubann, þ.e. að ekki séu fleiri en 100
einstaklingar inn í sama rými, hvort sem um er að ræða innan- eða utandyra. Þá skal sjá til þess, eftir
því sem unnt er, að hægt sé að hafa a.m.k. 2 metra á milli einstaklinga, gera ráðstafanir til að þrífa
eða sótthreinsa búnað eða æfingasvæði daglega og tryggja aðgengi að hreinlætisaðstöðu til
handþvotta og sótthreinsunar. Ljóst er að þessi skilyrði munu útiloka æfingar fjölmargra
íþróttagreina.

Íþróttafélögin, hvert fyrir sig, þurfa að koma því á framfæri við sína iðkendur og félagsmenn hvað af
íþróttastarfsemi þeirra þau telja að geti farið fram að uppfylltum þeim skilyrðum sem fram hafa
komið. Rétt er að ítreka að það á ekki að gefa neinn afslátt af þeim kröfum sem yfirvöld hafa sett
fram til að sporna við útbreiðslu þessarar veiru.

Við lifum nú fordæmalausa tíma og það er mikilvægt að allir taki höndum saman um að gera þá eins
bærilega og kostur er. Sóttvarnalæknir, landlæknir og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hafa
unnið mjög gott starf við að bregðast við þeirri vá sem að okkur sækir. Með samstöðu og því að allir
fylki sér að baki þeim reglum sem þessi embætti hafa gefið út má því ætla að við eigum að geta
komist í gegnum þennan tíma á eins farsælan hátt og mögulegt er.

ÍSÍ er í stöðugu sambandi við yfirvöld og mun deila út til íþróttahreyfingarinnar upplýsingum um leið
og þær berast.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  ka@ka-sport.is