Eirini meðal kennara á Spáni á ráðstefnu um júdó fatlaðra
25.11.2026
Eirini Fytrou, yfirþjálfari júdódeildar KA, var meðal kennara á ráðstefnu um júdó fatlaðra sem fram fór í Logroño á Spáni helgina 7.–8. nóvember. Ráðstefnan var haldin samhliða námskeiðinu „Júdó fyrir alla“ á vegum Háskólans í La Rioja og var Eirini boðið sérstaklega út til að kenna þar.
Námskeiðið var ætlað júdóþjálfurum, íþróttakennurum og öðru fagfólki sem vill laga júdókennslu að þörfum fatlaðs fólks. Eirini var þar í alþjóðlegum hópi kennara sem sá um verklegar vinnustofur og fræðslu um hvernig allir geta tekið þátt í júdói.