KA Podcastið - Blakbikarveisla

Blak

KA Podcastið hefur göngu sína að nýju enda blakveisla framundan þegar úrslitahelgi Kjörísbikarsins fer fram. Veislan hefst kl. 17:30 í dag þegar karlalið KA mætir Vestra og á morgun, föstudag, mætir kvennalið KA liði Þróttar Fjarðabyggðar kl. 20:15.

Þeir félagar Ágúst Stefánsson og Arnar Már Sigurðsson formaður blakdeildar fara hér yfir helstu hluti í blakheimum á leið sinni suður. Komið ykkur í gírinn fyrir blakveisluna með því að hlusta á þá hér, áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  ka@ka-sport.is