Úrslitakeppnin byrjar hjá strákunum

Blak

Úrslitakepnin í blaki karla hefst í kvöld þegar HK tekur á móti KA klukkan 19:30. KA endaði í 3. sæti úrvalsdeildarinnar og mætir hér liði HK sem endaði í 6. sæti deildarinnar. Liðin mætast fyrst á heimavelli HK og svo á föstudaginn á heimavelli KA klukkan 19:00.

Ef liðin vinna sitthvorn leikinn mun heimaleikur KA á föstudaginn fara í gullhrinu þar sem liðið sem vinnur þessa einu hrinu mun fara áfram í undanúrslitin.

Það er því ansi mikilvægt að byrja einvígið vel og strákarnir ætla sér klárlega að hefja veisluna á sigri!

Hvetjum alla sem geta til að mæta í Digranesið en annars er leikurinn í beinni á streymissíðu BLÍ, áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  ka@ka-sport.is