02.06.2026
Sumarmót Lyftingasambands Íslands fór fram um síðastliðna helgi í frábærri umgjörð Lyftingadeildar KA. Í frétt á heimasíðu LSÍ segir meðal annars: “Óhætt er að segja að mótahaldið hafi verið til fyrirmyndar, skipulagið var gott og fagleg vinnubrögð einkenndu mótið frá upphafi til enda.”
09.02.2026
Lyftingadeild KA blæs til sóknar og kynnir nýja unglingatíma í lyftingum. Til að fagna upphafinu og nýjum þjálfara verður FRÍTT í tímana út febrúar
13.11.2025
Alex Cambray Orrason, lyftingamaður úr KA, stendur í ströngu þessi dægrin en hann er staddur í Rúmeníu að etja kappi við þá stærstu og sterkustu í heimi. Í Cluj-Napoca í Rúmeníu, eru komnir saman sterkustu kraftlyftingamenn heims til að keppa á Heimsmeistaramótinu í kraftlyftingum með búnaði
26.08.2025
Íris Hrönn Garðarsdóttir varð Bikarmeistari í bekkpressu um helgina og bætti þar enn einni skrautfjöður í hatt Lyftingadeildar KA. Allar þrjár lyftur Írisar voru gildar en mest lyfti hún 125kg
21.06.2025
Drífa Ríkharðsdóttir, lyftingakona úr KA, keppti á HM í klassískum kraftlyftingum í Þýskalandi nýverið. Drífa átti flott mót með samanlagðan árangur upp á 392,5 kg
07.05.2025
Alex Cambray Orrason tryggði sér silfuverðlaun í hnébegju á Evrópumótinu í kraftlyftingum með búnaði í dag. Mótið er haldið í Pilsen í Tékklandi en Alex keppir í -93kg opnum flokki.
Alex uppskar sannarlega eftir mikla vinnu og átti frábæran dag. Alex byrjaði á 327,5 kg, tók næst 345 kg og í þriðju beygju lyfti hann 357,5 kg sem er 10 kg bæting á hans eigin Íslandsmeti.
Þessi lyfta tryggði honum silfur í hnébeygju í feykisterkum flokki.
Bekkpressan var spennandi, fyrstu tvær lyfturnar gengu ekki alveg sem skyldi en Alex náði þriðju örugglega með 202,5 kg á stönginni.
Réttstöðulyftan byrjaði vel með 260 kg í fyrstu lyftu. Dómari snéri við annarri lyftu í ógilda en Alex lfti 275 kílóin í þriðju lyftu. Samanlagður árangur varð 835 kg og skilaði Alex 4. sæti í flokknum en það var aðeins líkamsþyngd sem skildi að 3. og 4. sæti í flokknum.
Sannarlega frábær árangur hjá Alex og óskum við honum innilega til hamingju með frábæran árangur!
Upplýsingar frá www.kraft.is.
21.06.2024
Lyftingadeild KA stendur í stórræðum um helgina en deildin heldur tvö stórmót í KA-Heimilinu. Á laugardeginum fer fram Íslandsmeistaramót í réttstöðulyftu og á sunnudaginn fer fram sumarmót LSÍ og KA í ólympískum lyftingum
13.05.2024
Það var stór vika hjá Lyftingadeild KA í síðustu viku. Alex Cambrey Orrason gerði sér lítið fyrir og setti Íslandsmet þegar hann keppti á Evrópumótinu í kraftlyftingum með búnaði. Mótið fór fram í Hamm í Lúxemburg, 7.12. maí. Árangur Alex skilaði honum fimmta sæti í -93kg. flokki.
27.03.2024
KA átti þrjá fulltrúa á Evrópumótinu í klassískum kraftlyftingum í Velika Gorija í Króatíu sem lauk í vikunni. Áður sögðum við frá árangri Drífu Ríkharðsdóttur en næstir á sjónarsviðið voru þeir Viktor Samúelsson og Þorsteinn Ægir Óttarsson.
14.03.2024
Áfram berast fréttir frá Lyftingadeild KA en Drífa Ríkharðsdóttir keppti á sínu fyrsta Evrópumóti í vikunni en Evrópumeistaramótið í klassískum kraftlyftingum fer fram dagana 12.17. mars í Velika Gorija í Króatíu. Alls eru 214 keppendum á mótinu frá 29 löndum.