Fréttir

3. flokkur kvenna: Góður sigur á Haukum

3. flokkur kvenna spilaði við Hauka á laugardaginn. Fyrri hálfleikurinn var virkilega dapur og áttu Hauka stúlkur tvö mörk í hálfleik, staðan 11-13. Eftir hressandi hálfleikspásu mætti allt annað lið inn á völlinn. Vörnin virkilega góð, sóknin ákveðin og full af sjálfstrú og markvarslan frábær.

4. flokkur karla: 5 sigrar í 7 leikjum

/* /* 4. flokkur í handbolta fór suður um helgina að leika. Ferðin gekk mjög vel og handboltalega séð var spilamennskan mest megnis góð um helgina. A-lið flokksins er mætt aftur til leiks og sýndi það eftirminnilega um helgina en þeir unnu alla sína þrjá leiki glæsilega. B-liðið bæði spiluðu tvo leiki og unnu sitt hvorn leikinn.

3. flokkur karla fær Selfyssinga í heimsókn á laugardaginn

Þá er komið að fyrsta leik strákanna í 3. flokki eftir jólafrí og er hann ekki af verri endanum. Selfyssingar koma í heimsókn en þeir eru í toppsæti deildarinar sem stendur. Því ætlum við að breyta og viljum hvetja alla sem gaman hafa að horfa á skemmtilegan handbolta að mæta í KA heimilið á laugardaginn 10. jan kl: 17.00.

Reykjavíkurferð 6. flokks drengja

6. flokkur drengja fer í keppnisferð til Reykjavíkur helgina 23.-25. janúar næstkomandi. Nánari upplýsingar um ferðina birtast hér á heimasíðunni á næstu dögum. Foreldrar þeirra drengja sem ekki komast með í ferðina er beðnir um að tilkynna það til þjálfara sem fyrst. Foreldrar sem hafa áhuga á að koma með sem  fararstsjórar eru beðnir um að hringja í Jóhannes Bjarnason í síma 662-3200. Þess má geta að mánudaginn 19. janúar verður æfingamót við Þór í KA heimilinu 15:30-17:00.

Áramótabolti hjá kvennaliði KA/Þórs - myndir

Það var stór hópur stúlkna sem mætti upp í KA heimili þriðjudaginn 30. desember til þess að spila handbolta. Hugmyndin kom frá fyrrum þjálfara meistaraflokks kvenna, Hlyni Jóhannessyni, að meistaraflokkur kvenna léki gegn gömlum KA/Þór kempum sem eitt sinn léku undir hans stjórn. Það skal þó tekið fram að þessar "gömlu" kempur verða seint taldar gamlar í árum en þó töluvert eldri en núverandi meistaraflokkur.