Alexander Groven til liðs við KA

Fótbolti
Alexander Groven til liðs við KA
Alexander mætir í gula og bláa búninginn

KA barst í dag mikill liðsstyrkur frá Noregi er Alexander Groven skrifaði undir tveggja ára samning við félagið. Alexander er 26 ára örvfættur bakvörður og hefur mikla reynslu af fótbolta á háu stigi en hann hefur leikið 93 leiki í efstu deild í Noregi og gert í þeim þrjú mörk.

Þá lék Alexander 39 leiki með yngri landsliðum Noregs og gerði tvö mörk í þeim leikjum. Það er ljóst að koma Alexanders mun gera mikið fyrir félagið en hann er góður á bolta og mun auka við sóknarkraft liðsins á sama tíma og hann mun styrkja öflugan varnarleik okkar liðs.

Við bjóðum Alexander velkominn í félagið og hlökkum til að sjá hann í gulu og bláu.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is