Ársmiðasalan er hafin í Stubb!

Fótbolti

Fyrsti heimaleikur KA í sumar er laugardaginn 20. júní næstkomandi og viljum við benda ykkur á miðasöluappið Stubb. Stubbur kemur í veg fyrir biðraðir á leikina og minnir þig á hvenær KA á leik svo að þú missir ekki af neinu!

Ársmiðasalan er hafin en í boði eru fjórir valmöguleikar:

Bronsmiði - 20.000 kr

Bronsmiðinn veitir aðgang að heimaleikjum KA í Pepsi Max deildinni.

16-25 ára - 10.000 kr

Bronsmiðinn veitir aðgang að heimaleikjum KA í Pepsi Max deildinni fyrir 16-25 ára.

Silfurmiði - 30.000 kr

Silfurmiðinn veitir aðgang að heimaleikjum KA í Pepsi Max deildinni.
Silfurmiðinn veitir einnig aðgang að kaffinu í hálfleik.

Gullmiði - 50.000 kr

Gullmiðinn veitir aðgang að heimaleikjum KA í Pepsi Max deildinni.
Gullmiðinn veitir einnig aðgang að kaffinu í hálfleik.
Fyrir tvo leiki í sumar verður flottur matur og spjall í boði fyrir gullmiðahafa.

Við hvetjum ykkur eindregið til að notast við Stubb í sumar en með forritinu getur þú tryggt þér miða tímanlega á völlinn og á þeim stað sem þú vilt vera!

Sala á hefðbundnum ársmiðum hefst svo á næstu dögum. Ef einhverjar spurningar eru varðandi Stubb eða ársmiðasöluna hafðu samband í agust@ka.is.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is